Hoppa yfir valmynd
11. júní 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Haraldi Briem veitt Norrænu lýðheilsuverðlaunin

Haraldur Briem sóttvarnarlæknir
Haraldur Briem sóttvarnarlæknir

Norrænu lýðheilsuverðlaunin árið 2012 hlotnast að þessu sinni dr. Haraldi Briem, sóttvarnalækni og sérfræðingi í smitsjúkdómum hjá Embætti landlæknis, fyrir mikilvægar rannsóknir á útbreiðslu smitsjúkdóma, fyrir baráttu gegn ónæmi fyrir sýklalyfjum og fyrir aðkomu sína að uppbyggingu meistaranáms í lýðheilsufræðum við Háskóla Íslands. Haraldi voru veitt verðlaunin á árlegum fundi norrænna heilbrigðisráðherra sem nú stendur yfir í Bergen í Noregi. 

Norrænu lýðheilsuverðlaunin eru veitt einstaklingum, samtökum eða stofnunum sem lagt hafa mikið af mörkum til að bæta lýðheilsu á Norðurlöndunum. Horft er til þess að viðkomandi hafi á afgerandi hátt haft áhrif til að stuðla að bættri lýðheilsu, annaðhvort í eigin landi eða í víðara samhengi og verið öðrum til eftirbreytni.

Ole T. Andersen, formaður stjórnar Norræna lýðheilsuháskólans, sagði við verðlaunaafhendinguna í dag að Haraldur Briem hafi lagt mikið af mörkum í þágu bættrar lýðheilsu á Norðurlöndunum með yfirgripsmikilli fagþekkingu sinni og sterkum persónuleika. Það væri því sönn ánægja að veita honum Norrænu lýðheilsuverðlaunin árið 2012.

Haraldur lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands árið 1972. Árið 1979 lauk hann sérfræðiréttindum í bráðum smitsjúkdómum og sérfræðiréttindum í smitsjúkdómum innan lyflæknisfræði árið 1980. Árið 1982 lauk hann doktorsprófi í læknavísindum frá Karolinska háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg.

Haraldur hefur birt á annað hundrað greinar í ritrýndum fræðiritum og öðrum ritum með megináherslu á fylgikvilla sýkinga, smitandi lifrarbólgur, alnæmi og HIV-sýkingar, bólusetningar, berkla, lungnabólgur og faraldsfræði smitsjúkdóma, auk greina um bráð áhrif eiturefna og gosösku í umhverfinu.  

Á grundvelli sérfræðiþekkingar sinnar á svið smitsjúkdóma hefur Haraldur setið í fjölda nefnda og stjórna á vegum hins opinbera og tekið virkan þátt í erlendu samstarfi, meðal annars með setu í samnorrænni nefnd um alnæmisvarnir á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og samstarfshópi um heilbrigðisviðbúnað vegna atburða af völdum sýkla, eiturefna og geislavirkra efna. Árið 2005 var Haraldur fenginn til að veita forstöðu stofnun námsbrautar í lýðheilsufræðum við Háskóla Íslands og hefur frá árinu 2007 verið formaður stjórnar um þverfaglegt nám í lýðheilsuvísindum við skólann. Hann hefur einnig verið virkur á sviði félagsmála innan fræðasviðs síns, átt sæti í vísindanefndum og ritstjórnum ýmissa þekktra fræðirita, svo sem Scandinavian Journal for Infectious Diseases frá 1993 og Eurosurveillance frá árinu 2007.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum