Hoppa yfir valmynd
19. október 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Styrkir til félagasamtaka vegna velferðarverkefna lausir til umsóknar

Velferðarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki frá félagasamtökum sem starfa á verkefnasviði ráðuneytisins og njóta ekki framlaga á fjárlögum. Umsóknarfrestur er til miðnættis 20. nóvember næstkomandi.

Á fjárlögum ársins 2012 var fyrirkomulagi við úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga breytt hvað varðar aðkomu fjárlaganefndar Alþingis.  Ákvörðun um framlag til einstakra málaflokka fer þó eftir samþykki Alþingis í fjárlögum 2013.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti hafa einnig auglýst eftir umsóknum um styrki frá félagasamtökum sem starfa á verkefnasviðum þeirra og eru nánari upplýsingar veittar á vefsíðum einstakra ráðuneyta.

Ráðuneytin munu einungis úthluta styrkjum til verkefna sem falla undir málefnasvið þeirra að svo miklu leyti sem þau falla ekki undir lögbundna sjóði eða samninga, svo sem menningarsamninga eða vaxtarsamninga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir.  Verkefni eru einungis styrkhæf í einu ráðuneyti og áskilja ráðuneyti sér rétt til að færa umsóknir á milli ráðuneyta falli verkefni betur að málaflokki í öðru ráðuneyti.

Velferðarráðuneyti

Styrkir til félagasamtaka

Veittir eru styrkir til félagasamtaka sem starfa á verkefnasviði ráðuneytisins. Styrkirnir eru fyrst og fremst ætlaðir til að styðja við ráðgjöf og stuðning félagasamtakanna  við umbjóðendur sína. 

Verkefnastyrkir á sviði velferðarmála

Veittir eru styrkir til félagasamtaka vegna verkefna og aðgerða sem falla að verkefnasviði ráðuneytisins.

Mat á umsóknum.

Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir verkefnasvið ráðuneytis almennt. Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum eftir því sem við á:

  1. gildi og mikilvægi verkefnis fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks,
  2. gildi og mikilvægi fyrir kynningu og markaðssetningu viðkomandi málaflokks,
  3. að umsækjanda takist að ná þeim markmiðum sem verkefnið miðar að,
  4. starfsferli og faglegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda,
  5. fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina eða eins og kveðið er á um í samkomulagi vegna fyrri styrkveitinga.

Við mat á umsóknum er starfshópnum heimilt að leita umsagnar fagaðila, gerist þess þörf.

Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 31. janúar 2013.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is)

Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjenda og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu.

Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar. Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja velferðarráðuneyti undir flipanum Umsóknir.

Sjá einnig:

Nánari upplýsingar veitir Valgerður Gunnarsdóttir í síma 545 8100 eða í tölvupósti á [email protected].

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum