Hoppa yfir valmynd
7. janúar 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2013

Samstarfsnefnd um málefni aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2013. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

Framkvæmdasjóður aldraðra starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð nr. 1/2011 um Framkvæmdasjóð aldraðra með áorðnum breytingum, sbr. reglugerð nr. 1269/2011. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til velferðarráðherra um úthlutun úr honum. Vísað er til reglugerðarinnar varðandi upplýsingar um þau verkefni sem heimilt er að veita framlög til.

Við ákvörðun um úthlutun er stefna velferðarráðherra í öldrunarmálum höfð til hliðsjónar.

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja um rafrænt og er umsóknarformið ásamt nánari upplýsingum aðgengilegt hér á vef velferðarráðuneytissins.

Umsóknum ber að skila í síðasta lagi 3. febrúar 2013.

Samstarfsnefnd um málefni aldraðra

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum