Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samningur um stuðning við afganskar flóttafjölskyldur

Guðbjartur Hannesson og Jón Gnarr ásamt Lindu Rós Alfreðsdóttur, Önnu Kristinsdóttur og Hilmu Sigurðardóttur
Guðbjartur Hannesson og Jón Gnarr ásamt Lindu Rós Alfreðsdóttur, Önnu Kristinsdóttur og Hilmu Sigurðardóttur

 Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Jón Gnarr borgarstjóri undirrituðu í dag samning sem kveður á um aðstoð og stuðning sem Reykjavíkurborg mun veita þremur afgönskum flóttafjölskyldum frá Íran sem komu til landsins í lok nýliðins árs.

Flóttafólkið; þrjár konur ásamt fjórum börnum og tveimur ungmennum, er búsett í Reykjavík. Börnin eru byrjuð í skóla og konurnar stunda nám í íslensku. Samkvæmt samningnum er gert ráð fyrir samstarfi milli Reykjavíkurborgar, Rauða kross Íslands og velferðarráðuneytisins um aðstoð og þjónustu við þessar fjölskyldur og var samningur um aðkomu Rauða krossins að verkefninu undirritaður skömmu fyrir áramót.

Reykjavíkurborg sér meðal annars um að útvega fjölskyldunum húsnæði, ber ábyrgð á að veita þeim félagsráðgjöf og fjárhagsaðstoð samkvæmt reglum borgarinnar, greiða fyrir túlkaþjónustu, veita leik- og grunnskólamentun ásamt sértækum stuðningi við kennslu og sérfræðiþjónustu skóla eftir því sem það á við. Borgin mun einnig taka þátt í fræðslu- og kynningarstarfi ásamt velferðarráðuneytinu og Rauða krossi Íslands fyrir samstarfsaðila sem koma að þjónustu við fjölskyldurnar.

Samningurinn gildir til 19. desember 2013 og er miðað við að Reykjavíkurborg skili velferðarráðuneytinu stöðumatsskýrslum um aðstæður fjölskyldnanna, þann 1. apríl næstkomandi og við lok verkefnis.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Jón Gnarr borgarstjóri lýstu báðir mikilli ánægju með samninginn. Þeir sögðu mikilvægt að sinna þessu starfi vel og að fyrir lægi mjög góð reynsla af samstarfi ráðuneytisins og borgarinnar af sambærilegum verkefnum.  

Utanríkisráðuneytið og velferðarráðuneytið fjármagna verkefnið um móttöku flóttafólksins. Þetta er í fyrsta sinn sem tekið er á móti hópi frá Afganistan hér á landi en frá því að flóttamannanefnd var stofnuð árið 1995 hefur verið tekið á móti 13 hópum frá fimm löndum. Flóttamannanefnd starfar í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) um móttöku á flóttafólki.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum