Hoppa yfir valmynd
21. janúar 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Stefnumörkun í tóbaksvörnum

Velferðarráðuneytið
Velferðarráðuneytið

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað starfshóp til að marka stefnu í tóbaksvörnum. Miðað er við að stefna og meginmarkmið liggi fyrir vorið 2013. 

Starfshópurinn mun taka mið af þeim áherslum sem fram koma í tillögu til þingsályktunar um velferðarstefnu – heilbrigðisáætlun til ársins 2020 eftir því   sem  við  á. Einnig skal starfshópurinn hafa hliðsjón af rammasamningi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um tóbaksvarnir, lögum og öðrum stjórnvaldsfyrirmælum og horfa til nýjustu þekkingar á sviði tóbaksvarna.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum