Hoppa yfir valmynd
9. apríl 2013 Heilbrigðisráðuneytið

Undirbúningur að innleiðingu nýs greiðsluþátttökukerfis lyfja

Lyfjamál
Lyfjamál

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur staðfest reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaðivegna upptöku nýs greiðsluþátttökukerfis sem tekur gildi 4. maí næstkomandi. Jafnframt verða hækkaðar fjárhæðir í reglugerð sem kveður á um endurgreiðslu kostnaðar vegna umtalsverðs kostnaðar fólks við læknishjálp, lyf og þjálfun. 

Reglugerðin um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði er sett á grundvelli laga um sjúkratryggingar nr. 112/2008. Í reglugerðinni er kveðið á um meginatriði þeirra breytinga sem felast í nýju greiðsluþátttökukerfi vegna lyfjakostnaðar fólks sem tekur gildi 4. maí næstkomandi. Fjallað er um helstu atriði nýja greiðsluþátttökukerfisins á vef Sjúkratrygginga Íslands.

Endurgreiðslur umtalsverðs kostnaðar - fjárhæðir og tekjumörk hækka

Velferðarráðuneytið hefur að undanförnu haft til endurskoðunar reglugerð um endurgreiðslu á umtalsverðum kostnaði við læknishjálp, lyf og þjálfun. Fjárhæðir og viðmiðunarmörk vegna tekna hafa verið óbreytt frá árinu 2005 en nú hefur verið ákveðið að uppreikna fjárhæðir og tekjumörk sem leiðir til um 70% hækkunar þeirra. Velferðarráðherra hefur undirritað endurskoðaða reglugerð þar sem kveðið er á um þessar hækkanir og tekur hún gildi 4. maí, þ.e. um leið og nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna lyfja. Með þessu móti er leitast við að koma til móts við aðstæður fólks með lágar tekjur sem kann að lenda í erfiðleikum með upphafsgreiðslur fyrir lyf sín í nýju greiðsluþátttökukerfi.

Breytingar á reglugerðinni felast einkum í  hækkun viðmiðunarfjárhæða vegna fjölskyldutekna þegar reiknaður er út réttur til endurgreiðslu kostnaðar. Auk þessa verða settar sérstakar viðmiðunarfjárhæðir fyrir fullorðna sem ekki eru í sambúð. Sérstakt tillit verður tekið til barnafjölskyldna við útreikning á rétti til endurgreiðslu kostnaðar. Í því felst að ákveðinn hlutur af heildartekjum er talinn til framfærslu hvers barns sem er yngra en 18 ára og hefur því ekki áhrif til lækkunar þegar reiknaður er réttur umsækjanda til endurgreiðslu.

Endurskoðun reglugerðarinnar sem hér hefur verið lýst mun leiða til þess að mun fleiri geta sótt um endurgreiðslu frá Tryggingastofnun vegna umtalsverðs kostnaðar við læknishjálp, lyf og þjálfun. Þess ber einnig að geta að reglugerðin heimilar að tekið sé tillit til aðstæðna fólks verði það fyrir verulegri tekjulækkun, s.s. vegna alvarlegra veikinda eða atvinnumissis.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum