Hoppa yfir valmynd
24. apríl 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Hagstofan undirbýr birtingu félagsvísa í haust

Ólafur Hjálmarsson Hagstofustjóri, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Lára Björnsdóttir, formaður velferðarvaktarinnar
Ólafur Hjálmarsson Hagstofustjóri, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Lára Björnsdóttir, formaður velferðarvaktarinnar

Hagstofa Íslands stefnir að því að birta félagsvísa á vef stofnunarinnar í byrjun september. Félagsvísar eru safn fjölbreyttra tölfræðilegra upplýsinga sem varpa ljósi á félagslegar aðstæður ólíkra þjóðfélagshópa. Hagstofan mun birta og uppfæra félagsvísana reglulega samkvæmt samningi stofnunarinnar, velferðarráðuneytis og fjármála- og efnahgsráðuneytis sem gerður var í lok síðasta árs. 

Hagstofan hefur ráðið dr. Kolbein Stefánsson félagsfræðing til að annast þetta verkefni. Gerð félagsvísanna hófst árið 2009 þegar velferðarvaktin lagði til við velferðarráðherra að fengnir yrðu sérfræðingar til að setja saman íslenska félagsvísa. Tillagan var kynnt í ríkisstjórn og samþykkt að ráðast í slíka vinnu á vegum velferðarvaktarinnar undir stjórn fulltrúa efnahags- og viðskiptaráðuneytisins og velferðarráðuneytisins. Skýrsla með safni félagsvísa fyrir árin 2000-2010 var birt í febrúar árið 2012 og verður sú útgáfa jafnframt endurskoðuð reglulega. Sem dæmi um félagsvísa má nefna þróun greiðslubyrði eftir tekjuhópum, kyni og fjölskyldugerð, þróun meðaltekna sömu hópa, þróun fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga, þróun útgjalda ríkis og sveitarfélaga til einstakra málaflokka og svo mætti lengi telja.

Ólafur Hjálmarsson Hagstofustjóri segir að umsjón með félagsvísunum muni styrkja stofnunina og efla til muna söfnun og vinnslu félagslegra tölfræðigagna. Þá leiki enginn vafi á því að félagsvísarnir muni verða mikill fengur fyrir háskólasamfélagið og rannsóknarstarf á sviði félagsvísinda. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra sagði við undirritun samningsins við Hagstofuna á sínum tíma að vísarnir muni ótvírætt stuðla að betur undirbúnum og rökstuddum ákvörðunum og jafnframt gera mögulegt að skoða samfélagsleg áhrif ákvarðana sem teknar eru í fjölmörgum málum. „Þannig getum við líka séð hvort við erum á réttri leið eða þurfum að endurskoða stefnu og ákvarðanir stjórnvalda.“

Á þriðja tug sérfræðinga tók þátt í starfinu við gerð félagsvísanna frá velferðarráðuneytinu, efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Háskóla Íslands, Barnaverndarstofu, Tryggingastofnun ríkisins, Rannsóknum og greiningu, ríkislögreglustjóra, Hagstofu Íslands, Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, ríkisskattstjóra, ASÍ, umboðsmanni skuldara, Embætti landlæknis, Vinnumálastofnun og Þjóðskrá Íslands.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum