Hoppa yfir valmynd
24. september 2013 Innviðaráðuneytið

Tilkynning um skipan nýrrar stjórnar Íbúðalánasjóðs

Íbúðalánasjóður í Borgartúni
Íbúðalánasjóður í Borgartúni

Eygló Harðadóttir félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað nýja stjórn Íbúðalánasjóðs. Formaður stjórnarinnar er Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir lögmaður og tekur hún við af Jóhanni Ársælssyni. Tilkynning um skipan nýrrar stjórnar hefur verið birt á vef Kauphallar Íslands.

Samkvæmt breytingum á lögum um húsnæðismál frá júlí 2012 er nú gerð krafa um að forstjóri og stjórn sjóðsins standist kröfur Fjármálaeftirlitsins um hæfi.

Stjórn Íbúðalánasjóðs er skipuð eftirtöldum fulltrúum:

  • Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, lögmaður, formaður stjórnar
  • Hrund Hafsteinsdóttir, lögmaður, varaformaður
  • Haukur Ingibergsson, fv. forstjóri Þjóðskrár Íslands, aðalmaður
  • Kristrún Heimisdóttir, lektor í lögfræði við Háskólann á Akureyri, aðalmaður
  • Stefán Ólafsson, prófessor félagsvísindadeild HÍ, aðalmaður

Til vara:

  •  Kristinn Dagur Gissurarson, viðskiptafræðingur
  • Jóhann Birgisson, bankamaður
  • Halldóra Hauksdóttir, lögfræðingur
  • Margrét Rósa Sigurðardóttir, framhaldsskólakennari
  • G. Valdimar Valdimarsson, kerfisfræðingur
Nánar á vef Kauphallar Íslands

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum