Hoppa yfir valmynd
27. september 2013 Heilbrigðisráðuneytið

Björn Zoëga, forstjóri Landspítala, lætur af störfum

Björn Zoëga
Björn Zoëga

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur fallist á ósk Björns Zoëga um að láta af störfum. Ráðherra þakkar Birni fyrir öfluga forystu í krefjandi starfi á liðnum árum.

Björn hefur gegnt embætti forstjóra Landspítala í fjögur ár. Hann var skipaður forstjóri Landspítala í september 2010 en hafði áður verið starfandi forstjóri frá 15. september 2009 meðan þáverandi forstjóri var í starfsleyfi.

Skipaður verður starfandi forstjóri þar til ráðið verður á ný í embættið að undangenginni auglýsingu og hefðbundnu ráðningarferli samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu. Starfslokadagur Björns hefur ekki verið ákveðinn en hann mun verða starfandi forstjóra til aðstoðar á næstu vikum eftir þörfum.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir Björn hafa verið öflugan og góðan stjórnanda á erfiðum tímum: „Hann hefur sýnt mikla fagmennsku í störfum sínum, borið hag sjúkrahússins og hagsmuni sjúklinga fyrir brjósti og jafnframt tekist að halda rekstrinum í góðu horfi þrátt fyrir þröngan fjárhag. Ég færi honum bestu þakkir fyrir og óska honum velfernaðar á nýjum vettvangi.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum