Hoppa yfir valmynd
30. september 2013 Heilbrigðisráðuneytið

Ráðherra afhenti bleiku slaufuna

Frá afhendingu bleiku slaufunnar
Frá afhendingu bleiku slaufunnar

„Allir geta borið bleiku slaufuna í barmi með ánægju og stolti. Þetta er fallegur og vel hannaður gripur og stendur fyrir gott málefni sem allir vilja styrkja“ sagði Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra þegar afhending fyrstu bleiku slaufunnar í árvekni- og söfnunarátaki Krabbameinsfélags Íslands fór fram í Hörpunni í dag. Ráðherra flutti stutt ávarp við þetta tækifæri:

„Bleika slaufan og bleikur október eru alþjóðlegt fyrirbæri sem flest Krabbameinsfélög heims standa fyrir. Slaufan er tákn Krabbameinsfélagins í baráttunni gegn krabbameini í konum." Ráðherra sagði við þetta tækifæri að bleika slaufan hafi svo sannarlega fest sig í sessi sem táknmynd baráttunnar gegn krabbameinum hjá konum frá því að Krabbameinsfélagið stóð fyrst fyrir þessu átaki.

„Landsmenn taka jafnan bleiku slaufunni opnum örmum. Hún hreyfir við fólki, enda eru þeir vandfundnir sem ekki eiga sér einhvern nákominn úr hópi vina eða ættingja sem háð hefur baráttu við krabbamein. Þökk sé heilbrigðisvísindunum, góðu fagfólki og öflugu leitar- og forvarnarstarfi Krabbameinsfélags Íslands fjölgar þeim sífellt sem fara með sigur af hólmi í þessari baráttu og lifa löngu og góðu lífi þótt þessi vágestur hafi barið að dyrum.

 Allir geta borið bleiku slaufuna í barmi með ánægju og stolti. Þetta er jafnan einkar fallegur og vel hannaður gripur og stendur fyrir gott málefni sem allir vilja styrkja.

 Ég vona að undirtektir við sölu bleiku slaufunnar verði ekki síður góðar í ár en endranær. Að lokum færi ég Krabbameinsfélagi Íslands mínar bestu þakkir fyrir það mikilvæga starf sem félagið stendur fyrir. Við sem styðjum við félagið gerum það með gleði og ég vona að sem allra flestir samgleðjist í verki og næli bleikri slaufu í barminn. Það er allra hagur.“

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum