Hoppa yfir valmynd
29. október 2013 Forsætisráðuneytið

Norrænir jafnréttisráðherrar ræddu áhrif hlutastarfa á stöðu kynjanna

Eygló Harðardóttir (Ísland), Manu Sareen (Danmörk), Solveig Horne (Noregur), Dagfinn Høybråten (framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar), Maria Arnholm (Svíþjóð) og Paavo Arhinmäki (Finnland)
Eygló Harðardóttir (Ísland), Manu Sareen (Danmörk), Solveig Horne (Noregur), Dagfinn Høybråten (framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar), Maria Arnholm (Svíþjóð) og Paavo Arhinmäki (Finnland)

Ný norræn rannsókn um áhrif hlutastarfa á á stöðu kynjanna í efnahagslegu tilliti var meðal umfjöllunarefna á fundi norrænu jafnréttisráðherranna í Stokkhólmi síðastliðinn föstudag. Mikill munur er á milli landa þegar skoðað er hvaða áhrif hlutastörf hafa á eftirlaun kvenna í samanburði við eftirlaun fólks í fullu starfi. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, kynnti fyrirhugaðar áherslur Íslands í jafnréttissamstarfi þjóðanna á formennskuárinu 2014.

Rannsóknin um hlutastörf; Part-Time Work, Gender and Economic Distribution in the Nordic Countries,var unnin fyrir Norrænu ráðherranefndina og skýrsla með niðurstöðunum kom út í síðustu viku. Þar kemur meðal annars fram að hlutastörf eru algeng á Norðurlöndunum og miklu algengara að konur vinni í hlutastörfum en karlar. Munurinn er álíka mikill í öllum löndunum nema í Finnlandi. Flestar konur eru í hlutastarfi í Noregi, eða um 36% af konum á vinnumarkaði á aldrinum 25 til 64 ára, árið 2012. Í Danmörku voru 29% kvenna í hlutastarfi árið 2012 en 31% sænskra kvenna og 26% íslenskra kvenna. Finnlandi sker sig hins vegar úr, þetta ár voru 15 prósent finnskra kvenna í hlutastörfum.

Enn heyrir nánast til undantekninga að karlar séu í hlutastörfum. Algengast er það í Noregi en fátíðast á Íslandi.

Yfirleitt eru það foreldrar sem vilja samþætta vinnu og fjölskyldulíf sem velja hlutastörf. Talið er að möguleikinn á því að vera í hlutastarfi hafi stuðlað að mikilli atvinnuþátttöku kvenna á Norðurlöndunum, sveigjanleikinn sem hlutastörfum fylgi henti konum, fjölskyldum og atvinnurekendum. Aftur á móti er bent á að þegar atvinnuleysi eykst gegni fleiri hlutastörfum, jafnvel um langan tíma, án þess að það sé að eigin vali. Þetta hafi komið fram í kjölfar efnahagskreppunnar á tíunda áratug síðustu aldar og fjármálakreppunnar 2008.

Í skýrslunni er fjallað um muninn á eftirlaunum kvenna sem starfað hafa í fullu starfi alla starfsævina og hinna sem gegnt hafa hlutastarfi einhvern hluta starfsævinnar. Rannsakendur reiknuð út nokkur dæmi þar sem borin voru saman eftirlaun kvenna í fullu starfi og kvenna sem höfðu verið tíu ár starfsævinnar í hlutastarfi. Gefnar voru sömu forsendur en niðurstöður urðu ólíkar eftir því hvaða lönd áttu í hlut. Munurinn í Danmörku og Noregi er lítill. Þar fengu konur sem voru í hlutastarfi 98-99% af eftirlaunum þeirra sem voru í fullu starfi. Í Finnlandi, Svíþjóð og á Íslandi urðu eftirlaunin aftur á móti 4-6% lægri. Munurinn liggur í eftirlaunakerfunum og hvernig eftirlaun eru reiknuð.
Nánar um skýrsluna á vef Norðurlandaráðs

Jafnrétti á vinnumarkaði efst á baugi í norrænu jafnréttisstarfi

Undir forystu Svía í Norrænu ráðherranefndinni árið 2013 hefur jafnrétti á vinnumarkaði verið eitt af forgangsverkefnunum á sviði jafnréttismála. Íslendingar munu fara með formennsku í Norðurlandasamstarfinu árið 2014. Á fundi ráðherranna í Stokkhólmi kynnti Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, áherslur Íslands í norrænu samstarfi næsta árs en hún mun leiða starfið sem samstarfsráðherra.

Á næsta ári eru 40 ár liðin frá því að formlegt samstarf Norðurlandanna hófst á sviði jafnréttismála. Af því tilefni verður efnt til ráðstefnu um árangur og framtíðarmarkmið Norðurlandanna í  jafnréttismálum. Samhliða ráðstefnunni verður fundur jafnréttisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Að öðru leyti munu Íslendingar leggja áherslu á jafnrétti kynja á vinnumarkaði, þátttöku karla í jafnréttisstarfi, leiðir til að draga úr kynbundnu ofbeldi, vestnorrænt samstarf og samvinnu á Norðurslóðum.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum