Hoppa yfir valmynd
4. nóvember 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Dagur gegn einelti 8. nóvember

Stöndum saman gegn einelti
Stöndum saman gegn einelti

Þann 8. nóvember er í þriðja sinn haldinn sérstakur dagur gegn einelti hér á landi þar sem þjóðin er hvött til að standa saman gegn einelti í samfélaginu, ekki síst í skólum og á vinnustöðum. Allir eru hvattir til að leggja sitt af mörkum til að einelti fái ekki þrifist í samfélaginu og skólar, samtök og vinnustaðir eru hvattir til að beina sjónum að jákvæðum samskiptum, jákvæðum skólabrag og starfsanda.

Í tilefni dagsins stendur verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti fyrir hátíðardagskrá í Verzlunarskóla Íslands kl. 13:00–16:00. Fundarstjóri er Þóra Arnórsdóttir.

Dagskrá

  • Hljóðgerningur: Bjöllur, klukkur og flautur óma um allt land.
  • Sigríður Thorlacius, söngkona flytur nokkur lög ásamt undirleikara.
  • Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri menntamála í mennta- og menningar­mál­a­ráðuneytinu setur dagskrána.
  • Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla: Ekkert hatur – orðum fylgir ábyrgð.
  • Páll Óskar Hjálmtýsson og Magnús Stefánsson frumsýna myndina: Saga Páls Óskars.
  • Páll Óskar Hjálmtýsson og Magnús Stefánsson: Þolandi & gerandi frá þeirra sjónarhorni.
  • Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, flytur ávarp og veitir viðurkenningu vegna jákvæðra skilaboða gegn einelti til samfélagsins.
  • Viðurkenningarhafi flytur ávarp.
  • Þórkatla Aðalsteinsdóttir, sálfræðingur: Fagráð eineltismála í grunnskólum.
  • Nemendur Verzlunarskóla Íslands – tónlistaratriði.
  • Kaffi og kökur.
  • Dagskrárlok.

Nánari upplýsingar um daginn má nálgast á vefnum gegneinelti.is

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum