Hoppa yfir valmynd
13. desember 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Styrkir úr þróunarsjóði innflytjendamála 2013

Við tölvuna
Við tölvuna

Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði innflytjendamála með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags. Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á eftirfarandi viðfangsefni:

  • Þróunarverkefni sem styðja við félög sem hafa það að markmiði að efla virka þátttöku innflytjenda í samfélaginu og vinna að hagsmunamálum þeirra.
  • Þróunarverkefni og rannsóknir sem stuðla að bættri stöðu innflytjenda á vinnumarkaði og vinna gegn langtímaatvinnuleysi.
  • Rannsóknir og verkefni sem varða stöðu innflytjenda á húsnæðismarkaðnum.

Önnur verkefni koma einnig til álita.

Styrkir verða veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum og eru grasrótar- og hagsmunafélög innflytjenda sérstaklega hvött til þess að sækja um. Einstaklingum verða að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsókna. Til ráðstöfunar eru 10 milljónir króna. Styrkir geta numið að hámarki 75% af áætluðum  heildarkostnaði verkefnis. Unnt er að sækja um bæði á íslensku og ensku.

Umsóknarfrestur er til og með 17. janúar 2014. Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins: http://minarsidur.stjr.is

Vísað er á nánari upplýsingar á vef ráðuneytisins þar sem er að finna stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda, framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda og reglur þróunarsjóðs innflytjendamála með nánari upplýsingum um skilyrði styrkveitinga. Trúnaðar er gætt við meðferð allra umsókna.

Nánari upplýsingar fást í velferðarráðuneytinu í síma 545 8100 og með tölvupósti á netfangið [email protected] 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum