Hoppa yfir valmynd
16. janúar 2014 Innviðaráðuneytið

Ársskýrsla Leigjendaaðstoðarinnar 2013

Fjölbýli
Fjölbýli

Leigjendaaðstoðin sem Neytendasamtökin reka samkvæmt þjónustusamningi við velferðarráðuneytið hefur birt ársskýrslu um starfsemi sína árið 2013. Alls bárust 1.467 erindi sem flest snérust um ástand og viðhald leiguhúsnæðis og uppsögn leigusamnings.

Neytendasamtökin hafa rekið Leigjendaaðstoðina samkvæmt samningi við velferðarráðuneytið frá árinu 2011. Samningurinn var nýlega framlengdur og gildir til loka árs 2014. Í ársskýrslu Leigjendaaðstoðarinnar má sjá tölfræðilegar upplýsingar um erindi sem bárust á liðnu ári, auk upplýsinga um önnur verkefni sem Leigjendaaðstoðin sinnir. Í skýrslunni eru einnig birt nokkur dæmi um algengar spurningar frá leigjendum auk dæma um mál sem farið hafa fyrir kærunefnd húsamála.

Leigjendaaðstoðin heldur úti vefsíðunni leigjendur.is þar sem birtur er ýmis fróðleikur um réttindi og skyldur leigjenda auk erinda og umsagna sem Leigjendaaðstoðin sendir frá sér. Þá er í skýrslunni að finna nokkur dæmi um algengar spurningar frá leigjendum auk dæma um mál sem farið hafa fyrir kærunefnd húsamála.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum