Hoppa yfir valmynd
31. janúar 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Embætti forstjóra Landspítala laust til umsóknar

Landspítali - háskólasjúkrahús
Landspítali - háskólasjúkrahús

Heilbrigðisráðherra auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Landspítala.

Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús. Á spítalanum er veitt sérhæfð sjúkrahúsþjónusta, m.a. á göngu- og dagdeildum, fyrir alla landsmenn og almenn sjúkrahúsþjónusta fyrir íbúa heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins. Nánar er kveðið á um hlutverk hans í lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu.  Á Landspítala starfa á fimmta þúsund starfsmenn og er spítalinn stærsti vinnustaður á Íslandi.

Forstjóri ber ábyrgð á að Landspítali starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem heilbrigðisráðherra setur.  Forstjóri ber ábyrgð á þeirri þjónustu sem spítalinn veitir og á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. Forstjóri ræður aðra starfsmenn spítalans. Forstjóri skal hafa háskólamenntun sem nýtist honum í starfi og búa yfir reynslu af rekstri og stjórnun. Gerð er krafa um mikla samskipta- og leiðtogahæfileika.  

Hæfni umsækjenda verður metin af þriggja manna nefnd sem skipuð er af heilbrigðisráðherra skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára í senn frá 1. apríl 2014. Launakjör eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs.

Upplýsingar um starfið veitir Sveinn Magnússon, skrifstofustjóri ([email protected]).

Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil sendist velferðarráðuneytinu, Tryggvagötu 17, 150 Reykjavík eða á [email protected] eigi síðar en 21. febrúar 2014.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið liggur fyrir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum