Hoppa yfir valmynd
20. mars 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Um 67 milljónir króna verkefnastyrkir á sviði heilbrigðismála

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur samþykkt styrkveitingar til 31 verkefnis á vegum íslenskra félagasamtaka sem starfa á sviði heilbrigðismála, þar af fimm styrki til verkefna sem njóta styrks til tveggja ára samkvæmt samningum sem gerðir voru í fyrra. Auglýst var eftir umsóknum um styrki í nóvember síðastliðnum og bárust 48 umsóknir. Úthlutun þeirra byggist á reglum um styrki velferðarráðuneytisins sem veittir eru af safnliðum fjárlaga ár hvert.

Í samræmi við úthlutunarreglur var auglýst eftir verkefnum sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf í samræmi við áherslur ráðherra. Þetta eru meðal annars verkefni sem fela í sér gerð fræðsluefnis og fræðslustarfsemi, stuðning og ráðgjöf við félagsmenn viðkomandi félagasamtaka og til starfsemi félagasamtaka sem lýtur að því hlutverki þeirra að vera málsvari félagsmanna og standa vörð um hagsmuni þeirra. Eins og fram kom í auglýsingu eru ekki veittir styrkir til verkefna sem hlóta framlög á fjárlögum, falla undir sjóði ráðuneytisins eða fá fjármuni á grundvelli samninga við ráðuneytið.

Starfshópur á vegum heilbrigðisráðherra lagði mat á styrkhæfi umsókna þeirra félagasamtaka sem bárust og gildi þeirra fyrir verkefnasvið ráðuneytisins. Við mat á umsóknum var einkum byggt á eftirtöldum sjónarmiðum;

  • gildi og mikilvægi verkefnis fyrir viðkomandi málaflokk,
  • að umsækjanda muni takast að ná þeim markmiðum sem að er stefnt,
  • að verkefnið sé byggt á faglegum grunni,
  • fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.

Á meðfylgjandi yfirliti má sjá hvaða félagasamtök hlutu styrk að þessu sinni.

 

 

 

 

 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum