Hoppa yfir valmynd
26. júní 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Kaup á aðgerðarþjarka fyrir Landspítala tryggð

Kristján Þór Júlíusson, Páll Matthíasson og Brynjólfur Bjarnason
Kristján Þór Júlíusson, Páll Matthíasson og Brynjólfur Bjarnason

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra, Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, og Brynjólfur Bjarnason, formaður stjórnar Söfnunarsjóðs um aðgerðaþjarka fyrir Landspítala, undirrituðu í dag samkomulag um fjármögnun aðgerðaþjarka fyrir spítalann. Við sama tækifæri var afhent söfnunarfé sem stendur undir nærri helmingi kaupverðsins.

Söfnunarátak til kaupa á þjarkanum hófst fyrir tveimur árum. Stofnaður var söfnunarsjóður og varð að samkomulagi milli sjóðsins og Landspítalans að þjarkinn yrði keyptur tækist að safna fyrir um helmingi kaupverðsins. Átakinu lauk með því að Pokasjóður lagði fram 25 milljónir króna í söfnunina. Þar með voru komnar 110 milljónir í sjóðinn og fjármögnunin þar með tryggð.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir söfnunarátakið frábært dæmi um hvað hægt er að gera með samtakamættinum. Framlög hafi borist víðsvegar að af landinu, frá einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum: „Þannig sýnir fólk hug sinn til Landspítalans sem stendur augljóslega undir nafni sem þjóðarsjúkrahúsið okkar allra.“

Á síðustu árum hefur svokallaður aðgerðarþjarki (róbót) verið tekinn í notkun á helstu sjúkrahúsum í nágrannalöndunum. Búnaðurinn nýtist til margvíslegra skurðaðgerða, sérstaklega þó við þvagfæraskurðlækningar og aðgerðir á grindarholslíffærum kvenna. Aðgerðir með þessari aðferð eru inngripsminni en ella, bati er skjótari og hægt að hlífa betur nærliggjandi líffærum og viðkvæmri starfsemi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum