Hoppa yfir valmynd
23. september 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Málþing um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi, 25. september

Ofbeldi
Ofbeldi

Ný könnun á ofbeldi gegn konum í 28 Evrópulöndum verður kynnt á norrænu málþingi um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi sem haldið verður í Reykjavík 25. september. José Mendes Bota kynnir Istanbúlsamning Evópuráðsins um skyldur þjóða í baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og fulltrúar allra Norðurlandaþjóða kynna verkefni eða aðgerðir í sínu landi reynst hafa vel.

Barátta gegn kynbundnu ofbeldi er ein af megináherslum Norrænu ráðherranefndarinnar hvað varðar jafnrétti kynjanna enda er það útbreitt og hefur mjög alvarlegar afleiðingar fyrir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið. Ofbeldið er eitt af því sem kemur í veg fyrir að einstaklingar njóti sömu réttinda og eigi sömu möguleika á að nýta hæfileika sína og aðrir. Danir hafa reiknað út að kynbundið ofbeldi kosti samfélagið um 11 milljarða íslenskra króna. Íslensk rannsókn frá 2008–2010 sýndi að um 40% íslenskra kvenna verða fyrir einhvers konar kynbundnu ofbeldi á ævi sinni.

Á málþinginu verður fjallað um Istanbúlsamning Evrópuráðsins og þær skyldur sem hann leggur þjóðum á herðar í baráttu við ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi. Í samningnum nær hugtakið kona yfir kvenkyns einstakling frá vöggu til grafar. Ísland undirritaði samninginn í maí 2011 og er nú unnið að innleiðingu hans. Portúgalski þingmaðurinn José Mendes Bota mun fjalla um samninginn en hann er formaður þeirrar nefndar Evrópuráðsins sem vann að gerð hans.

Arni Hole frá Mannréttindastofnun Evrópusambandsins kynnir nýja stóra könnun á ofbeldi gegn konum í 28 Evrópulöndum og sagt verður frá glænýrri og einstakri úttekt Svía á lögum, reglum og aðgerðum sem beitt hefur verið þar í landi í baráttu við ofbeldi. Tilgangurinn var að kanna hvað hefði skilað árangri, hvaða hindranir væru í vegi og hvað þyrfti að gera betur. Það er lögreglustjórinn Carin Götblad sem kynnir úttektina sem hún stýrði. Þá verða kynnt verkefni eða aðgerðir frá hverju Norðurlandanna sem reynst hafa vel. Þar á meðal er áhættumat norsku lögreglunnar SARA sem verið er að innleiða um allan Noreg, íslenska Suðurnesjaverkefnið, reynslu Dana af aðgerðaáætlunum gegn kynbundnu ofbeldi og skönnun sem beitt er innan heilbrigðis- og félagsþjónustunnar í Finnlandi til að greina ofbeldi.

Norræna ráðherranefndin, innanríkisráðuneytið og velferðarráðuneytið ásamt Jafnréttisstofu standa fyrir málþinginu sem er hluti af formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2014.

Málþingið fer fram á ensku og er öllum opið meðan húsrúm leyfir. Þátttökugjald er 5.000 kr.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum