Hoppa yfir valmynd
26. september 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Embætti landlæknis auglýst laust til umsóknar

Embætti landlæknis
Embætti landlæknis

Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti landlæknis. Um embætti landlæknis fer samkvæmt lögum nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, og öðrum lögum eftir því sem við á.
Landlæknir er skipaður af heilbrigðisráðherra til fimm ára í senn að fengnu mati nefndar skv. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu. 

Umsækjendur um embætti landlæknis skulu hafa sérfræðimenntun í læknisfræði, þekkingu á sviði lýðheilsu og víðtæka reynslu eða menntun á sviði stjórnunar. Leitað er að einstaklingi með samskipta- og leiðtogahæfileika og góða þekkingu og reynslu af rekstri og stefnumótun. Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af stjórnunarstörfum innan heilbrigðisþjónustu.

Embætti landlæknis er undir yfirstjórn heilbrigðisráðherra og er meginmarkmið með starfrækslu þess að stuðla að heilbrigði landsmanna.

Landlæknir ber ábyrgð á því að embættið starfi í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli. Hann ber jafnframt ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma embættisins sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. 

Hlutverk landlæknis er meðal annars eftirfarandi:
• Að veita ráðherra og öðrum stjórnvöldum, fagfólki og almenningi ráðgjöf og fræðslu um málefni á verksviði embættisins.
• Að annast forvarna- og heilsueflingarverkefni.
• Að efla lýðheilsustarf í samvinnu við aðra sem að þeim málum starfa og styðja við menntun á sviði lýðheilsu.
• Að vinna að gæðaþróun.
• Að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsmönnum.
• Að hafa eftirlit með lyfjaávísunum og fylgjast með og stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun landsmanna.
• Að veita starfsleyfi til einstaklinga sem uppfylla skilyrði laga og reglugerða til notkunar starfsheita löggiltra heilbrigðisstétta.
• Að stuðla að því að menntun heilbrigðisstarfsmanna sé í samræmi við kröfur heilbrigðisþjónustunnar á hverjum tíma.
• Að sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu.
• Að bera ábyrgð á framkvæmd sóttvarna, sbr. sóttvarnalög.
• Að safna og vinna upplýsingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu.
• Að meta reglulega árangur af lýðheilsustarfi og bera hann saman við sett markmið.
• Að stuðla að rannsóknum á starfssviðum embættisins.
• Að sinna öðrum verkefnum sem honum eru falin samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða ákvörðun ráðherra.

Skipulag og verkaskipting stjórnsýslustofnana ráðuneytisins kann að koma til endurskoðunar á skipunartímanum, meðal annars í þeim tilgangi að efla heilbrigðisþjónustu og forvarnir. Það kann að leiða til þess að breytingar verði gerðar á starfsemi embættisins. Lögð er áhersla á að landlæknir taki þátt í þeirri vinnu.

Skipað verður í embættið frá 1. janúar 2015. Um kjör landlæknis fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs, sbr. lög nr. 47/2007, um kjararáð.

Ráðuneytið hvetur konur, jafnt sem karla, til að sækja um embættið.

Upplýsingar um starfið veita Anna Lilja Gunnarsdóttir ráðuneytisstjóri ([email protected]) og Margrét Björnsdóttir skrifstofustjóri ([email protected]) í síma 545 8100.

Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2014. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfylli hæfniskröfur fyrir starfið. Umsóknir skulu sendar til velferðarráðuneytisins, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 101 Reykjavík eða á netfangið [email protected]

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum