Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2015

Fjölbýli
Fjölbýli

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2015. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

Framkvæmdasjóður aldraðra starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð nr. 468/2014. Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til heilbrigðisráðherra um úthlutun úr honum. Vísað er til reglugerðarinnar varðandi upplýsingar um þau verkefni sem heimilt er að veita framlög til, afgreiðslu umsókna og reglur varðandi framlög.

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja um rafrænt og er umsóknarformið, ásamt nánari upplýsingum, aðgengilegt á vef velferðarráðuneytissins.

Umsóknum ber að skila eigi síðar en  9. febrúar 2015, kl. 16:00.

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra, 10. janúar 2015

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum