Hoppa yfir valmynd
4. mars 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Öllum tryggð atvinnutengd starfsendurhæfing

Hannes G. Sigurðsson, formaður stjórnar VIRK,  Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra
Hannes G. Sigurðsson, formaður stjórnar VIRK, Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra

Samkomulag hefur náðst milli stjórnvalda og heildarsamtaka vinnumarkaðarins um hvernig framlög úr ríkissjóði til starfsendurhæfingarsjóða skuli háttað. Þetta samkomulag mun því binda enda á þá óvissu sem hópar sem standa utan vinnumarkaðar hafa þurft að sæta um þjónustu hjá VIRK- starfsendurhæfingarsjóði. Samkomulagið tryggir að öllum sem á þurfa að halda er nú tryggð atvinnutengd starfsendurhæfing til að verða virkir á vinnumarkaði. Félags- og húsnæðismálaráðherra mun fá fulltrúa í stjórn VIRK.

Hannes G. Sigurðsson, formaður stjórnar VIRK, skrifaði undir samkomulagið í dag ásamt Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, og Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem fögnuðu þessum mikilvæga áfanga.

Hannes segir það mjög ánægjulegt að aðilar vinnumarkaðarins og ríkisstjórnin taki höndum saman um að tryggja öllum starfsendurhæfingu því það sé ávísun á betri vinnumarkað. Fólk sem hafi lokið starfsendurhæfingu sé dýrmætt fyrir atvinnulífið því kraftar þess geti nýst vel. Óvænt áföll vegna veikinda eða slysa setji oft strik í reikninginn en VIRK hjálpi fólki að bæta líf sitt, nýta styrkleika sína og komast út á vinnumarkaðinn á ný.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum