Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Úttektir á aðgengi fatlaðs fólks

Í hjólastól
Í hjólastól
Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks gerir ráð fyrir úttektum á aðgengi að opinberum byggingum, umferðarmannvirkjum og öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að.

Sveitarfélög bera ábyrgð á úttektum (sbr. aðgerðalið A.1 í áætluninni) en markmið þeirra er að leiða í ljós stöðu aðgengismála í hlutaðeigandi sveitarfélagi. Í framhaldi af úttekt verði gerð áætlun um úrbætur ef við á.

Velferðarráðuneytið mun veita styrki til þess að framkvæma umræddar úttektir. Auglýst er eftir umsóknum frá sveitarfélögum sem ljúka slíkri úttekt á yfirstandandi ári,  2015. Þjónustusvæði sem samanstanda af fleiri en einu sveitarfélagi, sem og ferlinefndir, geta einnig sótt um styrk.

Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 fimmtudaginn 20. ágúst 2015. Starfshópur metur umsóknir en forsenda fyrir greiðslu styrks er að ráðuneytinu hafi borist afrit af úttekt sem lýsi stöðu aðgengismála í sveitarfélaginu. Reiknað er með að þessum afritum verði skilað eigi síðar en 20. nóvember 2015 og greiðsla styrksins fari fram fyrir áramót.

Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins  (http:// minarsidur.stjr.is)

Innskráning á mínar síður - þrjár leiðir:

  1. Auðkenning með rafrænum skilríkjum á vef Island.is
  2. Auðkenning með Íslykli á vef Island.is
  3. Notandi velur flipann Nýskráning og skráir sig á vefinn á kennitölu sinni, gefur upp fullt nafn, heimilisfang og netfang og ákveður síðan lykilorð.

Hafi notandi sótt um áður á Mínum síðum velur hann flipann Innskráning og skráir sig inn með einhverri ofangreindra aðferða.

Undir flipanum Eyðublöð eru eyðublöð flokkuð eftir ráðuneytum og stofnunum og þar undir velferðarráðuneyti er umsóknareyðublaðið Styrkur til úttekta í aðgengismálum fatlaðs fólks.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um gerð umsókna á rafrænum eyðublöðum er að finna á vef ráðuneytisins.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum