Hoppa yfir valmynd
15. október 2015 Forsætisráðuneytið

Alþjóðleg ráðstefna í tilefni aldarafmælis kosningaréttar kvenna

Harpa
Harpa

Á fimmta hundrað manns hafa skráð sig á alþjóðlegu ráðstefnuna; Borgaraleg réttindi kvenna í 100 ár, sem haldin verður í Hörpu dagana 22. og 23. október. Frestur til að skrá sig rennur út á miðnætti  í kvöld. Meðal gesta er Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastjóri UN Women, og Gro Harlem Brundtland, fyrrum forsætisráðherra Noregs.

Í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna verður að frumkvæði Alþingis efnt til alþjóðlegrar hátíðarráðstefnu í Hörpu dagana 22.-23. október 2015. Fyrri daginn verður sjónum beint að baráttunni fyrir almennum kosningarétti og þróun borgaralegra réttinda kvenna á þeim hundrað árum sem liðin eru frá því að konur hlutu kjörgengi og kosningarétt á Norðurlöndum. Síðari daginn verður leitast við að svara þeirri spurningu hvaða ógnir steðji að borgaralegum réttindum kvenna í dag.

Yfirskrift dagskrárinnar 22. október er; Lýðræði á Norðurlöndum. Dagskráin hefst að morgni með því að ávörp flytja Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastjóri UN Women, og Kira Apppel, formaður embættismannanefndar Norðurlandaráðs í jafnréttismálum.

Síðdegis 22. október verður haldin hátíðarmálstofa til heiðurs frú Vigdísi Finnbogadóttur sem hefst með ávarpi Tan Lin, forstöðukonu Women´s Studies Institute of China, en þátttakendur í málstofunni eru frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands, Gro Harlem Brundtland, fyrrum forsætisráðherra Noregs, og Laura Ann Liswood, framkvæmdastjóri Council of Wopmen Woarld Leaders.

Þann 23. október hefst ráðstefnan með ávarpi Einars K. Guðfinssonar, forseta Alþingis. Þennan dag er einnig fjölbreytt dagskrá með mörgum áhugaverðum erindum, þar sem einkum verður fjallað um stöðu kvenna á opinberum vettvangi og þær hindranir sem helst standa í vegi fyrir auknu kynjajafnrétti.

Ráðstefnan verður haldin í Hörpu og er bæði almenns og fræðilegs eðlis. Hún fer fram á ensku, er öllum opin og aðgangur er ókeypis.

Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku og rennur skráningarfrestur út á miðnætti í kvöld, 15. október.

Á vefsvæði 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á Íslandi má sjá dagskrá og allar nánari upplýsingar um ráðstefnuna, meðal annars upplýsingar um fyrirlesara, skipuleggjendur, styrktaraðila o.fl.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum