Hoppa yfir valmynd
20. október 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Málþing Jafnréttissjóðs 24. október


Kyn og fræði

Ný þekking verður til


Jafnréttissjóður býður til málþings þar sem kynntar verða niðurstöður rannsókna sem sjóðurinn styrkti 2014 og og jafnframt fer fram úthlutun sex nýrra styrkja. Málþingið verður haldið á kvennafrídaginn 24. október 2015 kl. 11-13 í Iðnó.

Dagskrá

  • Ávarp forsætisráðherra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar
  • Guðný Gústafsdóttir: Mótsagnir kvenleikans: Kyngervi og þegnréttur á Íslandi
  • Marta Einarsdóttir: Íslenska ofurfjölskyldan – samræming fjölskyldu og atvinnu.
  • Guðný Björk Eydal: Hvernig haga pólskir og íslenskir foreldrar atvinnuþátttöku og umönnun barna sinna
  • Arndís Bergsdóttir: Í höftum fjarveru – um hlut kvenna á sýningum íslenskra menningarminjasafna
  • Hildur Jónsdóttir varaformaður Jafnréttissjóðs kynnir styrkveitingar Jafnréttissjóðs 2015. Afhending.

Boðið verður upp á léttan hádegisverð. Enginn aðgangseyrir – allir velkomnir.

Um Jafnréttissjóð

Árið 2005 samþykkti ríkisstjórn Íslands að minnast 30 ára afmælis Kvennafrídagsins með því að stofna sérstakan rannsóknarsjóð, Jafnréttissjóð, til eflingar rannsóknum á stöðu kvenna og karla. Sjóðnum er ætlað að vera framlag og hvatning til þess að hér á landi séu gerðar vandaðar rannsóknir á sviði jafnréttis- og kynjafræða. Á þeim tíu árum sem liðin eru frá stofnun sjóðsins hefur verið lögð áhersla á rannsóknir á stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði, á áhrifum gildandi löggjafar á sviði jafnréttismála og á síðari árum í vaxandi mæli á samspili kyns og annarra mismununarþátta. Sérstaklega hefur verið horft til þátttöku ungra vísindamanna í rannsóknarverkefnum.

Sjóðurinn starfar samkvæmt reglum um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs nr. 513/2006. Hann er vistaður í forsætisráðuneyti og skipar forsætisráðherra formann sjóðsins sem nú er Anna Kolbrún Árnadóttir menntunarfræðingur. Aðrir í stjórn sjóðsins eru Jóna Pálsdóttir tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðherra og Ingi Valur Jóhannsson tilnefndur af félags- og húsnæðismálaráðherra. Starfsmaður og varaformaður sjóðsins er Hildur Jónsdóttir, sérfræðingur í forsætisráðuneyti.

Í ár er síðasta úthlutun úr sjóðnum í þeirri mynd sem hann hefur verið starfræktur, en gert er ráð fyrir að á næsta ári taki Jafnréttissjóður Íslands við hlutverki hans. Ekki var úthlutað úr sjóðnum á árunum 2009-2011. Rannsóknir sem styrktar hafa verið frá stofnun sjóðsins eru 36 talsins og styrkir Jafnréttissjóðs hafa samtals numið 70,5 m.kr. Kynningarefni um rannsóknir sem styrktar hafa verið er að finna á vef forsætisráðuneytis.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum