Hoppa yfir valmynd
29. október 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Upphafsfundurlandssamráðs gegn ofbeldi

Ofbeldi_pallbord1
Illugi Gunnarsson, Eygló Harðardóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

Vel var mætt á upphafsfund landssamráðs gegn ofbeldi og afleiðingum þess sem haldinn var í dag að frumkvæði þriggja ráðherra. Fundurinn markar upphaf að formlegu samráði á landsvísu til að bæta samvinnu og verklag í málum sem tengjast ofbeldi og afleiðingum þess.

Fundurinn hófst með ávarpi Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem bauð fundarmenn velkomna á fundinn sem hún sagði marka formlegt upphaf að víðtæku samráði lykilaðila til að vinna gegn ofbeldi í samfélaginu, hvaða nafni sem það nefnist: „Þetta starf er byggt á samstarfsyfirlýsingu sem ég tel til tímamóta – yfirlýsingu sem þrír ráðherrar undirrituðu þann 18. desember í fyrra um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess. Eins og Frá fundinum um landssamráð gegn ofbeldiþið vitið eru það innanríkisráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra sem standa að baki yfirlýsingunni – og sú staðreynd ein og sér segir mikið um hve víða þarf að vera á verði gegn ofbeldi hvers konar – raunar á öllum sviðum samfélagsins.“

Ráðherra gerði orðnotkun að umfjöllunarefni í ræðu sinni og hvernig orðræðan endurspeglaði á hverjum tíma viðhorf til málefna eins og ofbeldis: „Við þurfum ekki að fara mjög langt aftur í tímann til þess að sjá ákveðin svið ofbeldis sem aldrei voru rædd – aldrei færð í orð – eða klædd með orðum í búning sem gerði lítið úr alvarleikanum eða jafnvel sneri öllu á haus þar sem gerendur ofbeldisins voru nánast settir á stall en lítið gert úr þolendunum.

Kynferðislegt ofbeldi og kynferðisleg misnotkun var helst ekki rædd, og alls ekki með því nafni, hvorki gegn fullorðnum né börnum. Kynferðisleg misnotkun barna var algjört tabú og gagnvart því ríkti algjör afneitun. Litið var svo á að hvorki drengir né karlmenn gætu orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi eða misnotkun og einnig að konur gætu ekki verið gerendur. Karlar sem leituðu á konur gegn vilja kvennanna voru einfaldlega kvensamir og allt í lagi með það – og konurnar vildu þetta eflaust en vissu það bara ekki sjálfar! Nei þýddi já og svo framvegis.

Í þessum efnum hefur okkur svo sannarlega miðað í rétta átt, þ.e. að viðurkenna vandann og þar með nauðsyn þess að vinna gegn honum.“

Að lokinni ræðu ráðherra fjallaði Ingibjörg Broddadóttir, formaður stýrihóps um aðgerðir gegn ofbeldi, um vinnu hópsins sem unnið hefur að undirbúningi þess landssamráðs sem formlega var ýtt úr vör á fundinum. Að því búnu flutti Ingólfur V. Gíslason, dósent í félagsfræði, erindi Ofbeldi-_mikilvaegt-ad-skimasem hann kallaði; Kúgun og slagsmál – ofbeldi í nánum samböndum. Ingólfur fjallaði meðal annars um mikilvægi þess að skima fyrir ofbeldi þar sem því yrði við komið og vísaði til íslenskra rannsókna sem sýna meðal annars að um 33% kvenna sem koma á bráðadeild hafa verið beittar ofbeldi í nánu sambandi og að tæp 22% kvenna greina frá slíku á Miðstöð mæðraverndar. Hann benti einnig á að ofbeldi væri hverju samfélagi afar dýrt, líka í krónum talið og vísaði meðal annars í upplýsingar frá Danmörku þar sem talið er að ofbeldi gegn konum kosti samfélagið um 70 milljónir evra á ári.

Jóhannes Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á SuðurnesjumSamvinna er lykilatriði – var yfirskrift erindis sem Jóhannes Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, flutti þar sem hann sagði frá Suðurnesjaverkefninu þar sem lögregla, félagsþjónusta og barnaverndarnefndir á Suðurnesjum tóku höndum saman og lögðu saman getu sína og þekkingu til að bregðast á sem bestan og skjótastan hátt við í málum þar sem grunur var um ofbeldi. Fundinum lauk með pallborðsumræðum þar sem fulltrúar ráðuneytanna þriggja, þ.e. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, aðstoðarmaður Ólafar Nordal innanríkisráðherra, svöruðu fyrirspurnum fundargesta.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum