Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2016

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr  Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2016. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

Framkvæmdasjóður aldraðra starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð nr. 468/2014 . Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til heilbrigðisráðherra um úthlutun úr honum. Vísað er til reglugerðarinnar varðandi upplýsingar um þau verkefni sem heimilt er að veita framlög til, afgreiðslu umsókna og reglur varðandi framlög.

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja um rafrænt og er umsóknarformið, ásamt nánari upplýsingum, aðgengilegt á vef velferðarráðuneytissins http://vel.is

Umsóknum ber að skila í síðasta lagi  fyrir kl. 16:00 mánudaginn 1. febrúar 2016.

 

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum