Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2016 Heilbrigðisráðuneytið

Uppbygging Landspítala við Hringbraut: "Skýr vilji og vel rökstudd ákvörðun"

Heilbrigðisráðherra á fundi um uppbyggingu Landspítala
Heilbrigðisráðherra á fundi um uppbyggingu Landspítala

„Höldum áfram á markaðri braut“ var yfirskrift erindis sem Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra flutti á fundi Félags atvinnurekenda um uppbyggingu Landspítala við Hringbraut í morgun. Ráðherra fór þar yfir stöðu framkvæmda og næstu skref. Hann sagði ávörðun um uppbygginguna byggjast á skýrum vilja og sterkum rökum.

Í erindi sínu lagði ráðherra áherslu á að skyldur hans sem heilbrigðisráðherra væru fyrst og fremst við sjúklinga og snérust um að tryggja þeim aðgang að þeirri flóknu og sérhæðu þjónustu sem þeir þurfi jafnan með sem koma á Landspítalann og að sú þjónusta standist eðlilegar kröfur um öryggi og gæði og einnig aðbúnað: „Það sem blasir við og fólk verður að átta sig á er að til þess að standa undir þessum kröfum þarf margt að haldast í hendur og uppbygging Þjóðarsjúkrahússins er þar algjörlega nauðsynleg.“

Kristján Þór sagði að nú væri þetta stóra verkefni komið á framkvæmdastig og áfram yrði haldið á þeirri braut sem hefði verið mörkuð, m.a. með ályktun Alþingis sem 56 þingmenn samþykktu án mótatkvæða í maí 2014 um; „að fela ríkisstjórninni að ljúka eins fljótt og verða má undirbúningi á endurnýjun og uppbyggingu Landspítala við Hringbraut og hefja framkvæmdir þegar fjármögnun hefur verið tryggð.“

Ráðherra rakti feril undirbúnings vegna uppbyggingar Landspítalans undanfarin sex ár, allt þar til fyrsta skóflustunga að sjúkrahóteli á Landspítalalóðinni við Hringbraut var tekin í nóvember síðastliðnum: „Margítrekuð skoðun málsins, umfjöllun fagaðila, endurmat á faglegum niðurstöðum – og umfjöllun Alþingis hefur alltaf leitt okkur að sömu niðurstöðu sem felur í sér uppbyggingu við Hringbraut.“ Og nú eru framkvæmdir hafnar, sagði ráðherra og bætti við að nú færi að hefjast rýnivinna á forhönnun rannsóknarhússins og undirbúningur að útboði fullnaðarhönnunar þess. Auk þess mætti benda á að Háskóli Íslands myndi á þessu ári rýna forhönnun vegna byggingar húss fyrir heilbrigðisvísindasvið skólans þar sem allar deildir þess munu sameinast undir einu þaki.

Í júní 2015 samþykkti Alþingi ályktun um stefnumörkun í ríkisfjármálum 2016 – 2019. Ráðherra sagði stuttlega frá áætluninni en í henni felst m.a. að 5,1 milljarður króna verði lagður í uppbyggingu Landspítala á tímabilinu þar sem lokið verði við byggingu sjúkrahótels og hönnun meðferðarkjarna sem boðinn verði út í framhaldinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum