Hoppa yfir valmynd
18. mars 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Ríkið áformar að auka framlög til reksturs hjúkrunarheimila

Á dvalarheimili
Á öldrunarheimili

Heilbrigðisráðherra telur rök standa til þess að auka fjármagn til reksturs hjúkrunarheimila á þessu ári. Viðræður standa yfir um gerð þjónustusamninga við rekstaraðila hjúkrunarheimila sem rekin eru á daggjöldum. Ríkissstjórnin samþykkti í dag að fela ráðherrum heilbrigðis- og fjármála að ræða við aðilana um mögulega styrkingu á rekstrargrunni heimilanna.

Viðkvæm fjárhagsstaða og þungur rekstur einkennir rekstrarumhverfi flestra hjúkrunarheimila, þótt staða einstakra heimila sé misjöfn. Samkvæmt skýrslu sem Ríkisendurskoðun skilaði Alþingi í nóvember 2014 um rekstur og afkomu hjúkrunarheimila árið 2013 nam samanlagður halli hjúkrunarheimila 4,66% að jafnaði þrátt fyrir að þriðjungur heimilanna skilaði jákvæðum rekstri.

Ekki er ljóst hvað veldur breytilegri rekstarafkomu og virðist hvorki stærð heimilanna né hjúkrunarþyngd íbúa á heimilunum vera fullnægjandi skýring. Það liggur þó fyrir að breyting sem gerð var á fyrirkomulagi mats á þörf fólks fyrir búsetu á hjúkrunarheimili árið 2008, samhliða hlutfallslegri fjölgun aldraðra, hefur leitt til þess að þeir sem fara inn á hjúkrunarheimili eru mun veikari en áður var og hjúkrunarþyngd íbúanna mælist að meðaltali töluvert hærri en áður.

Aukin hjúkrunarþyngd

Frá árinu 2009 hafa fjárveitingar til reksturs hjúkrunarheimila verið auknar sem nemur launa- og verðlagsbótum en rekstrargrunnurinn hefur ekki verið hækkaður til samræmis við vaxandi hjúkrunarþyngd samkvæmt RAI-mati.

Sjúkratryggingar Íslands fengu í byrjun árs 2015 umboð til að gera þjónustusamninga við rekstraraðila hjúkrunarheimila sem fjármögnuð eru með daggjöldum. Samningar hafa enn ekki náðst og ljóst að skortur á fjármagni til rekstrarins stendur samningum fyrir þrifum. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir að þótt eflaust megi lengi deila um hve há daggjöld til hjúkrunarheimila þurfi að vera sé orðið alveg ljóst í hans huga að það verði að styrkja rekstrargrunn þeirra frá því sem nú er: „Við verðum að finna þessum rekstri grundvöll með samingum þar sem skilgreint er hvaða þjónustu þessi heimili eiga að veita. Þar með höfum við jafnframt miklu betri og raunhæfari forsendur til að meta hve mikla fjármuni þarf til að standa undir þjónustunni. Fulltrúar okkar fjármálaráðherra munu koma að þessum viðræðum með Sjúkratryggingum Íslands og vonandi fáum við niðurstöðu í málið sem fyrst“ segir Kristján Þór.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum