Hoppa yfir valmynd
27. september 2006 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Íslenska sveitarstjórnarstigið - viðhorf sveitarstjórnar- og alþingismanna

Rannsókna­miðstöð Háskólans á Bifröst vann að beiðni félagsmálaráðuneytisins, vorið og sumarið 2006, rannsókn á viðhorfum sveitarstjórnarmanna og alþingismanna til framtíðar íslenska sveitar­stjórnar­stigsins. Könnunin var þýðiskönnun og náði til allra alþingismanna, sveitarstjórnarmanna og fram­kvæmda­stjóra sveitar­félaga í landinu. Um var að ræða vefkönnun sem var framkvæmd á tímabilinu 5. apríl til 7. maí 2006. Svarhlutfall var 58,8% sem telst mjög vel við unandi í könnun sem þessari.

Meðal helstu niðurstaðna:

  • Mikill meirihluti sveitarstjórnar­- og alþingis­manna telur þörf á að efla sveitarstjórnarstigið á Íslandi.
  • Góður meirihluti er jafnframt þeirrar skoðunar að sveitarfélögin séu ekki nægilega öflug til að standa undir núverandi lögbundnum verkefnum og að fjöldi fámennra sveitarfélaga valdi því að íslenska sveitarstjórnarstigið sé veikara en ella.
  • Þrír af hverjum fjórum telja æskilegt að sveitarfélögin taki við fleiri verkefnum frá ríkisvaldinu.
  • Málefni aldraðra og fatlaðra eru þeir málaflokkar sem stjórnmálamenn telja æskilegast að sveitarfélögin taki yfir. Þetta á sérstaklega við um málefni aldraðra en hartnær þrír af hverjum fjórum svarenda vilja flytja þann málaflokk til sveitarfélaga.
  • Þá telja stjórnmálamenn að það sé æski­legt að hækka lágmarksíbúatölu sveitarfélaga og er þá oftast nær nefnd lágmarkstala um og yfir 1000 íbúar.
  • Á sama tíma telur mikill meirihluti stjórnmálamanna að tillögur um sameiningu sveitar­félaga skuli leggja í dóm kjósenda með atkvæðagreiðslum.

Skýrsluna í heild er að finna á vefsíðu Rannsóknamiðstöðvarinnar

Skjal fyrir Acrobat ReaderÍslenska sveitarstjórnarstigið



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum