Hoppa yfir valmynd
3. desember 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Úrbætur fyrir örorku- og ellilífeyrisþega

Víxlverkanir milli bóta örorkulífeyrisþega úr almannatryggingakerfinu og tekna þeirra úr lífeyrissjóðum verða aftengdar tímabundið í þrjú ár. Einnig verður frítekjumark ellilífeyrisþega vegna lífeyrissjóðstekna hækkað í áföngum á þremur árum. 

Stjórnvöld og Landssamtök lífeyrissjóða undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um að koma í veg fyrir víxlverkanir örorkubóta og lífeyrissjóðstekna öryrkja. Víxlverkanirnar hafa komið öryrkjum illa og staðið í vegi fyrir kjarabótum þeim til handa. Lífeyrissjóðirnir hafa síðustu misserin miðað greiðslur sínar til öryrkja við tekjur þeirra áður en þeir urðu fyrir örorku. Þetta hefur leitt til þess að þegar stjórnvöld hafa hækkað bætur til öryrkja hafa greiðslur lífeyrissjóðanna lækkað að sama skapi. Tekjutengingin milli almannatrygginga og lífeyrissjóða er gagnkvæm. Aðgerðir stjórnvalda til að bæta kjör öryrkja hafa því litlu skilað til þessa hóps og sömuleiðis hafa hærri greiðslur úr lífeyrissjóðum leitt til lækkunar örorkubóta.

Viljayfirlýsingin sem undirrituð var í dag felur í sér að víxlverkanir milli örorkubóta almannatrygginga og lífeyrissjóðstekna verða aftengdar í þrjú ár. Áhrif atvinnutekna öryrkja á bætur og greiðslur úr lífeyrissjóðum verða hins vegar óbreytt. Aðilar eru sammála um að nota þennan tíma til að finna lausn á fyrirkomulagi þessara mála til framtíðar. Samhliða mun fara fram endurskoðun á tekjutengingu ýmissa bótaflokka almannatrygginga.

Hækkun frítekjumarks ellilífeyrisþega vegna lífeyrissjóðstekna

Viljayfirlýsing stjórnvalda og lífeyrissjóðanna felur einnig í sér að frítekjumark ellilífeyrisþega vegna lífeyrissjóðstekna verður hækkað í áföngum og verður hið sama og frítekjumark örorkulífeyrisþega.

Frítekjumark ellilífeyrisþega vegna lífeyrissjóðstekna er nú 10.000 krónur á mánuði en frítekjumark örorkulífeyrisþega 27.400 krónur á mánuði. Frítekjumark ellilífeyrisþega verður hækkað í þremur áföngum. Fyrsta hækkunin verður í ársbyrjun 2013, önnur hækkun í byrjun árs 2014 og að endingu í byrjun árs 2015.

Heildarkostnaður ríkissjóðs vegna hækkunar frítekjumarksins eru tæpir 1,9 milljarðar króna og dreifast útgjöldin á tímabilið 2013–1015.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum