Hoppa yfir valmynd
3. desember 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ljósmyndasýning í tilefni Evrópuársins 2010

Laugardaginn 4. desember verður opnuð ljósmyndasýning sem fjallar um fátækt og félagslega einangrun í húsakynnum Samhjálpar í Borgartúni 1 í Reykjavík. Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, opnar sýninguna kl. 18:00.  

Sýningin er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun en auk þeirra komu Hlutverkasetur, Hjálparstofnun kirkjunnar og Kvennasmiðjan að framkvæmd verkefnisins. Verkin á sýningunni unnu listnemar í samstarfi við fólk sem upplifir fátækt eða félagslega einangrun.

.„Verkefnið er nokkuð óvenjulegt, en tilgangurinn var að leiða saman ólíka hópa og nota listformið til að tjá raunveruleika þeirra sem kljást við fátækt eða félagslega einangrun. Verkefnið er í raun samevrópskt, en svipuðum verkefnum var hrundið af stað í öllum löndum Evrópusambandsins og í Noregi í tilefni af Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun,“ segir Linda Rós Alfreðsdóttir hjá félags- og tryggingamálaráðuneytinu sem hefur umsjón með Evrópuárinu á Íslandi.

Auk sýningar á verkunum verða fimm þeirra gefin út á póstkortum sem verður dreift um land allt og er ætlað að vekja athygli á fátækt og félagslegri einangrun.

„Ég held að allir þeir sem hafa komið að verkinu hafi haft gaman að því, og það hefur sannarlega víkkað sjóndeildarhring allra. Hver nemandi starfaði með einstaklingi sem hefur reynslu af fátækt eða félagslegri einangrun og voru verkefnin því unnin í pörum. Ég hvet alla til að koma og skoða sýninguna,“ segir Eric Wolf sem kenndi á námskeiðinu við Listaháskóla Íslands.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum