Hoppa yfir valmynd
14. desember 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Viðurkenning Jafnréttisráðs árið 2010

Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, hlaut viðurkenningu Jafnréttisráðs fyrir árið 2010. Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, flutti ávarp við afhendingu viðurkenningarinnar, föstudaginn 10. desember.

Guðrún tileinkaði viðurkenninguna Stígamótum, Skottufélögunum og þeim fimmtíu þúsund konum sem hittust í miðborginni 25. október síðastliðinn, eftir réttláta vinnu, eins og segir um viðburðinn á heimasíðu Stígamóta.

10. október er mannréttindadagur Sameinuðu þjóðanna og þá lauk alþjóðlegu sextán daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi sem haldið var í tuttugasta sinn. Að þessu sinni var sjónum beint að ofbeldi gegn konum á átakasvæðum. Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, ræddi um átakið, þátttöku Íslendinga í því og um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi hér á landi, í ávarpi sem hann flutti við afhendingu jafnréttisviðurkenningarinnar:

Guðbjartur Hannesson„Það eru aðeins sjö ár síðan íslensk félagasamtök og stofnanir hófu þátttöku í 16 daga átakinu sem endurspeglar vaxandi þunga í ofbeldisumræðunni hér á landi. Ár eftir ár hefur  tekist að vekja athygli á því hve mikil áhrif kynbundið ofbeldi hefur á félagslega stöðu og heilbrigði brotaþola og þeirra barna sem verða vitni að ofbeldi. Í alþjóðaumræðu er lögð sífellt meiri áhersla á að ofbeldi gegn konum og börnum er ekkert annað en mannréttindabrot. Því er vel við hæfi að átakinu ljúki á þessum degi.

Nýleg rannsókn sem gerð var hér á landi í samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar gegn kynbundnu ofbeldi leiðir í ljós að um það bil fimmta hver kona býr við ofbeldi í nánu sambandi á ævi sinni. Rannsóknin sýnir að um það bil 1.800 konur sæta ofbeldi í nánum samböndum á ári hverju. Af þessum konum sögðust 26% hafa verið í lífshættu og 4% þeirra voru barnshafandi. Rannsóknin beinir sjónum að því hve þekkingu faghópa er ábótavant hvað varðar kynbundið ofbeldi og mjög víða vantar viðbragðsáætlanir og úrræði til hjálpar brotaþolum.“

Ráðherra sagði frá vinnu við gerð nýrrar aðgerðaáætlunar gegn kynbundnu ofbeldi sem taka mun mið af niðurstöðum rannsóknarinnar hvað varðar stóraukna fræðslu til fagstétta og almennings, lagabætur og ný eða bætt úrræði.  Einnig verður tekið verður mið af yfirlýsingu Evrópuráðsins um kynbundið ofbeldi  sem væntanlega verður samþykkt snemma á næsta ári.

Ráðherra sagði einnig frá skipun nefndar sem falið hefur verið að semja frumvarp til laga um hina svokölluðu austurísku leið sem felur í sér að ofbeldismaður er fjarlægður af heimili í stað þess að konan og börnin leggi á flótta. Þá hefur félags- og tryggingamálaráðuneytið kostað verkefnið Karlar til ábyrgðar sem felur í sér að ofbeldismönnum er boðið upp á meðferð.

 „Austuríska leiðin, umræður um að hægt verði að skikka menn í meðferð sem og aukin eftirspurn karla eftir meðferðinni kallar á aukinn stuðning hins nýja velferðarráðuneytis. Aftur minni ég á að kynbundið ofbeldi hefur bæði félagsleg og heilsufarsleg áhrif sem ógna lífi og heilsu þeirra sem fyrir því verða og kostar samfélagið mikið fé. Það er stefna núverandi ríkisstjórnar að beita öllum tiltækum ráðum til að draga sem allra mest úr kynbundnu ofbeldi, efla forvarnir, styðja brotaþola, vernda börn og síðast en ekki síst að beina sjónum að gerendunum – ofbeldismönnunum, þeirra er ábyrgðin.

Ríkisstjórnin leggur ríka áherslu á jafnrétti kynjanna og að kynjasjónarhorni sé beitt við alla ákvarðanatöku og stefnumótun. Framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2010-2014 hefur verið lögð fram á Alþingi. Að þessu sinni er áætluninni skipt upp eftir málaflokkum og er að finna í henni alls 38 verkefni sem ýmist eru á ábyrgð ríkisstjórnarinnar eða einstakra ráðuneyta. Þetta er metnaðarfull áætlun sem vonandi mun fleyta okkur áfram í átt til jafnari tækifæra og jafnari stöðu kynjanna.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum