Hoppa yfir valmynd
2. apríl 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Auka á hlut kvenna í sveitarstjórnum

Alþingi hefur ályktað að Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, feli Jafnréttisstofu að hrinda af stað aðgerðum til að efla hlut kvenna í sveitarstjórnum. Hlutur kvenna í sveitarstjórnum hefur aukist mjög hægt þrátt fyrir meiri umræðu um mikilvægi þess að fjölga konum í stjórnmálum á undanförnum árum. Konur voru þannig eingöngu um tæp 36% allra sveitarstjórnarmanna á landinu eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar 2006. Hlutfall kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarstjórnarmanna var svipað.

Konur eru í meirihluta í sveitarstjórnum í tíu sveitarfélögum á landinu en í sjö sveitarfélögum er engin kona meðal sveitarstjórnarmanna. Einungis fjórðungur oddvita sveitarstjórna er konur.

Félags- og tryggingamálaráðherra sem jafnframt er ráðherra jafnréttismála segir mjög mikilvægt að fjölga konum í sveitarstjórnum því „jafnræði milli kynja í stjórnmálum eykur líkurnar á því að hagsmunir heildarinnar séu hafðir að leiðarljósi þegar ákvarðanir eru teknar“.

Jafnréttisstofa býr yfir mikilli þekkingu á stöðu kvenna í samfélaginu og er því vel til þess fallin að annast aðgerðir til auka hlut kvenna í sveitarstjórnum. Verður meðal annars lögð áhersla á samstarf við samgönguráðuneyti sem fer með málefni sveitarstjórna, Samband íslenskra sveitarfélaga sem og stjórnmálaflokkana sem bjóða fram til sveitarstjórna. Sveitarstjórnarkosningar verða næst haldnar vorið 2010.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum