Hoppa yfir valmynd
3. apríl 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Greiðsluerfiðleikaúrræði vegna fasteignaveðlána

Undirskrift samkomulags um beitingu greiðsluerfiðleikaúrræðiUndirritað hefur verið samkomulag milli stjórnvalda og allra lánveitenda fasteignaveðlána hér á landi um samræmingu úrræða fyrir einstaklinga og heimili sem eru í greiðsluerfiðleikum vegna fasteignaveðlána.

Með samkomulaginu er leitast við að tryggja að allir lántakendur fasteignaveðlána fái notið sambærilegra greiðsluerfiðleikaúrræða og Íbúðalánasjóður veitir viðskiptavinum sínum lendi þeir í greiðsluvanda. Gerð samkomulagsins er í samræmi við verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í þágu heimila.

Samkomulagið er undirritað af Ástu R. Jóhannesdóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, Gylfa Magnússyni viðskiptaráðherra og Guðmundi Bjarnasyni, framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, annars vegar og Jónu Björk Guðnadóttur, Samtökum fjármálafyrirtækja, Hrafni Magnússyni, framkvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða, og Hlyni Jónssyni, formanni skilanefndar SPRON, hins vegar.

Samkomulagið mælir fyrir um að lánveitendur fasteignaveðlána tryggi lántakendum sínum greiðsluerfiðleikaúrræði að uppfylltum eftirtöldum skilyrðum:

  • Að greiðsluerfiðleikar stafi af óvæntum tímabundnum erfiðleikum vegna veikinda, slysa, minni atvinnu, atvinnuleysi eða af öðrum ófyrirséðum atvikum.
  • Að aðrir lánadrottnar lántakanda samþykki einnig að veita aðstoð vegna greiðsluerfiðleika ef þörf er talin á því.
  • Að greiðslubyrði lántakanda samkvæmt greiðslumati sé umfram greiðslugetu.
  • Að greiðslubyrði lántakanda eftir skuldbreytingu og/eða frestun á greiðslum og/eða lengingu lánstíma rúmist innan greiðslugetu.
  • Að fyrir liggi samþykki síðari veðhafa þegar það á við.

Greiðsluerfiðleikaúrræðin eru eftirfarandi:

  • Samningar um uppgjör vanskila: Unnt verði að semja um dreifingu á vanskilum í allt að 18 mánuði.
  • Rýmingarfrestur í kjölfar nauðungarsölu: Tekið verður aukið tillit til aðstæðna við rýmingu í kjölfar nauðungarsölu og veittur verði rýmingarfrestur allt að þremur mánuðum frá söludegi.
  • Heimildir til greiðslufrestunar vegna sölutregðu: Með frystingu greiðslna verði komið til móts við lántakendur sem hafa keypt fasteign en ekki getað selt fyrri eign vegna aðstæðna á fasteignamarkaði.
  • Skuldbreyting vanskila: Boðið verði upp á skuldbreytingu vanskila með því að bæta vanskilum við höfuðstól eða með því að gefa út nýtt skuldabréf eftir ákvörðun kröfuhafa.
  • Frestun á greiðslum: Lántakandi geti óskað eftir frestun á greiðslu afborgana, að hluta eða fullu, og vaxta og verðbóta, eftir atvikum, í allt að eitt ár í senn og með möguleika á framlengingu í samtals allt að þrjú ár.
  • Lenging lánstíma: Mögulegt verði að lengja lánstíma lána að því marki sem það getur gagnast lántakanda enda rúmist lenging lánstíma innan lánareglna viðkomandi lánveitanda.

Samkomulagið gerir ráð fyrir að Íbúðalánasjóður veiti fjármálafyrirtækjum og lífeyrissjóðum upplýsingar og ráðgjöf um beitingu þessa úrræða. Þau koma, eftir atvikum, til viðbótar greiðsluerfiðleikaúrræðum sem lántakendur kunna eiga rétt á samkvæmt lögum. Samkomulagið gildir til ársloka árið 2010.

Samkomulagið er gert með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Skjal fyrir Acrobat Reader Samkomulag um beitingu greiðsluerfiðleikaúrræða (PDF, 32KB)



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum