Hoppa yfir valmynd
22. maí 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Námstefna um jafnréttisfræðslu í leik- og grunnskólum 26. maí

Efnt verður til námstefnu á vegum þróunarverkefnisins um jafnréttisfræðslu í leik- og grunnskólum þriðjudaginn 26. maí í Salnum í Kópavogi kl. 13:30.

Þróunarverkefnið jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum á rætur að rekja til norræns samstarfs í jafnréttismálum og er byggt á danskri fyrirmynd. Markmiðið með því er að auka og efla jafnréttisfræðslu í leikskólum og grunnskólum landsins. Að verkefninu standa félags- og tryggingamálaráðuneytið, Jafnréttisstofa og fimm sveitarfélög: Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Mosfellsbær og Akureyrarbær. Menntamálaráðuneytið styður verkefnið og leggur framkvæmd þess lið ásamt Jafnréttisráði og fjölmörgum styrktaraðilum.

Efni námstefnunnar

Á námstefnunni verða kynnt tíu verkefni sem nýst geta til jafnréttisstarfs í skólum. Sérstakur gestur námsstefnunnar er Louise Windfeldt, höfundur bókarinnar „Den dag Frederik var Frida / Den dag Rikke var Rasmus“ sem nú hefur verið gefin út í íslenskri þýðingu í tilefni af degi barnsins 24. maí. Bókin sem á íslensku heitir „Þegar Friðrik var Fríða / Þegar Rósa var Ragnar“ þykir mæta brýnni þörf fyrir gott og aðgengilegt fræðsluefni um jafnréttismál fyrir yngstu börnin. Námstefnan í Salnum í Kópavogi 26. maí er kjörinn vettvangur fyrir alla sem vilja fræðast um jafnrétti í skólastarfi. Hún er öllum opin og eru skólastjórnendur, kennarar, foreldrar, fulltrúar fræðslunefnda, fulltrúar jafnréttisnefnda starfsmenn skólaskrifstofa, sveitarstjórnarmenn og stjórnmálamenn sérstaklega hvattir til að mæta. Nánar má fræðast um þróunarverkefnið jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum á heimasíðu verkefnisins: www.jafnrettiiskolum.is.

Skjal fyrir Acrobat Reader Dagskrá námstefnu um jafnrétti í skólum



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum