Hoppa yfir valmynd
29. júní 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Norrænir félags- og heilbrigðisráðherrar funda í Reykjavík

Áhrif efnahagssamdráttar á velferðarmálin, félags- og heilbrigðismál, samstarf Norðurlandanna í baráttunni gegn afleiðingum inflúensu, og framtíðarskipulag norrænna stofnana á sviði velferðarmála, allt eru þetta viðfangsefni á árlegum fundi félags- og heilbrigðisráðherra Norðurlandanna, sem hefst í Reykjavík í dag, 29. júní, og lýkur á morgun.

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, og Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra bjóða til fundarins, en fimm starfsbræður þeirra annars staðar af Norðurlöndum hafa boðað komu sína.

Á fundinum mun Stefán Ólafsson prófessor, meðal annarra, gera grein fyrir áhrifum efnahagssamdráttarins á velferðarþjónustuna hér á landi og fara yfir hvað Íslendingar geta lært, til dæmis af Finnum, Færeyingum og Svíum, en ráðherrar allra landanna sækja fundinn.

Á fundinum verða Norrænu lýðheilsuverðlaunin afhent. Þau eru veitt einstaklingi eða samtökum sem hafa skarað framúr á sviði lýðheilsu að mati sérstakrar nefndar á vegum Norræna lýðheilsuháskólans í Gautaborg.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum