Hoppa yfir valmynd
30. desember 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Hjúkrunarheimilunum í Víðinesi og á Vífilsstöðum lokað á næsta ári. Nýtt hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut tekið í notkun

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur ákveðið að loka hjúkrunarheimilunum í Víðinesi og á Vífilsstöðum 1. september 2010. Við lokunina flyst heimilisfólk á nýtt hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut sem stjórnvöld eru að byggja í samstarfi við Reykjavíkurborg og tekið verður í notkun á næsta ári að undangengnu útboði á rekstrinum. Starfsfólk á Vífilsstöðum og í Víðinesi mun njóta forgangs í störf á nýja hjúkrunarheimilinu í samræmi við kröfur í væntanlegum útboðsgögnum. Samningur hins opinbera við Sjómannadagsráð um rekstur Víðiness og Vífilsstaða er útrunninn, en aðilarnir hafa nú gert nýjan samning um að Hrafnista reki áfram heimilin tvö þar til af flutningi verður.

Stjórnendur Hrafnistu kynntu starfsfólki hjúkrunarheimilanna þessar breytingar á fundi fyrr í dag ásamt fulltrúum frá félags- og tryggingamálaráðuneyti. Í kvöld hafa verið boðaðir kynningafundir með heimilisfólki og aðstandendum þess.

Eins og áður segir mun það starfsfólk sem nú starfar í Víðinesi og á Vífilsstöðum njóta forgangs í störf á nýja hjúkrunarheimilinu við Suðurlandsbraut, en rúmlega 160 starfsmenn eru á þessum tveimur heimilum í dag. Heimilisfólk í Víðinesi og á Vífilsstöðum sem ekki kýs að flytja á nýja hjúkrunarheimilið við Suðurlandsbraut getur óskað eftir flutningi til annarra hjúkrunarheimila.

Hrafnista hefur síðustu ár annast rekstur hjúkrunarheimilanna í Víðinesi og á Vífilsstöðum á grundvelli samninga við ríkið. Hjúkrunarheimilið í Víðinesi var opnað í apríl árið 1999 eftir miklar endurbætur á húsnæðinu. Árið 2002 tók Sjómannadagsráð við rekstrinum, þar sem eru tvær deildir fyrir 38 heimilismenn. Þar starfa 66 manns í 38 stöðugildum. Vífilsstaðir eru hjúkrunarheimili fyrir 50 hjúkrunarsjúklinga. Hrafnista tók við rekstrinum árið 2003 og opnaði í byrjun árs 2004 að loknum gagngerum breytingum á húsnæðinu sem kostuðu rúmlega 300 milljónir króna. Á Vífilsstöðum starfa 96 manns í 51 stöðugildi.

Breytingarnar eru liður í áætlun félags- og tryggingamálaráðuneytisins um fækkun fjölbýla og bættan aðbúnað aldraðra á hjúkrunarheimilum.

Stjórn Sjómannadagsráðs, stjórnendur Hrafnistu og félags- og tryggingamálaráðuneytið munu leggjast á eitt til að tryggja að þessar breytingar raski sem minnst högum heimilisfólks og starfsmanna Víðiness og Vífilsstaða með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

Félags- og tryggingamálaráðuneytið og DAS-Hrafnista
30. desember 2009

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum