Hoppa yfir valmynd
4. maí 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ákvæði um kaupleigurétt, öflugri húsnæðissamvinnufélög og endurbætur fjölbýlishúsa

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp Árna Páls Árnasonar, félags- og tryggingamálaráðherra, um breytingar á lögum um húsnæðismál. Helstu breytingarnar felast í heimild til Íbúðalánasjóðs um að bjóða kaupleigurétt á íbúðum sem sjóðurinn hefur keypt á uppboði, nýju ákvæði um lánveitingar til húsnæðissamvinnufélaga til að styrkja starfsemi þeirra og víðtækari heimildum sjóðsins til að fjármagna stórfelldar breytingar á fjölbýlishúsum til að bæta aðgengi fyrir fatlaða. 

Kaupleiga á uppboðsíbúðum

Með áformuðum breytingum verður Íbúðalánasjóði heimilt að bjóða til leigu íbúðir sem sjóðurinn hefur keypt á nauðungaruppboði með ákvæði um kauprétt leigjenda. Miðað er við að allir húsaleigusamningar Íbúðalánasjóðs verði með kaupréttarákvæði. Leigjendum verður ekki skylt að nýta sér kaupréttinn heldur ákveða þeir sjálfir hvort eða hvenær hann nýtir sér þennan rétt. Umsamin húsaleiga mun taka mið af markaðsleigu á viðkomandi stað.

Efling húsnæðissamvinnufélaga

Til að skapa fjölbreyttari húsnæðismöguleika fyrir einstaklinga og fjölskyldur verður starfsemi húsnæðissamvinnufélaga efld með auknum lánamöguleikum til bygginga eða kaupa á búsetuíbúðum. Í þessu felst meðal annars að húsnæðissamvinnufélögum verður auðveldað að endurfjármagna búsetuíbúðir þegar skipt er um búseturéttarhafa.

Endurbætur á húsnæði til að bæta aðgengi fatlaðra

Íbúðalánasjóði vera veittar tímabundnar heimildir til lánveitinga vegna endurbóta á húsnæði, meðal annars til þess að fyrirtæki og stofnanir geti aukið aðgengi fatlaðra að húsnæði sínu. Einnig eru ráðgerðar auknar heimildir sjóðsins til að fjármagna stórfelldar breytingar á fjölbýlishúsum, til dæmis vegna hönnunar og uppsetningar á lyftum þar sem þess er þörf. Með þessu er stefnt að því að auka frelsi og möguleika fólks með fötlun til að velja sér húsnæði. Ætla má að þessar aðgerðir verði jafnframt til þess að efla byggingariðnaðinn og bæta atvinnustig.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum