Hoppa yfir valmynd
12. maí 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Vel heppnaður fundur um fátækt og félagslega einangrun

Vel heppnaður fundur um fátækt og félagslega einangrun (Ljósm. Hreinn Magnússon)
Vel heppnaður fundur um fátækt og félagslega einangrun (Ljósm. Hreinn Magnússon)

Síðastliðinn sunnudag var haldinn fundur þar sem fólk úr ýmsum hópum samfélagsins komu saman til þess að ræða um fátækt og félagslega einangrun og hvaða leiðir séu færar til að vinna gegn slíkri stöðu. Fundurinn, sem var með þjóðfundarsniði, var haldinn í tilefni af Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun og var skipulagður af stýrihópi á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins.

Eitt af meginmarkmiðum Evrópuársins á Íslandi er að raddir þeirra einstaklinga sem búa við fátækt og félagslega einangrun fái að heyrast. „Þess vegna ákváðum við að halda fund með þjóðfundarsniði þar sem fólk úr hinum ýmsu hópum samfélagsins sest niður og ræðir á jafnræðisgrundvelli um fátækt, óörugga lífsafkomu og félagslega einangrun og hvaða leiðir séu færar til þess að vinna gegn slíkri stöðu,“ segir Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra. Mikilvægt sé að koma á öflugri samræðum og skoðanaskiptum í samfélaginu um þessi mál og tryggja að allar raddir heyrist. „Það er von okkar að fundurinn skili raunhæfum hugmyndum og ábendingum um leiðir sem geti reynst gagnlegar í baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun á Íslandi.“

Yfir 80 manns tóku þátt í fundinum sem gekk vonum framar en margar áhugaverðar tillögur komu þar fram. Nú verður unnið úr tillögum og áherslum fundarins og stefnt á að kynna þær sem fyrst og koma á framfæri til réttra aðila. Niðurstöðurnar verða birtar á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Ráðuneytið þakkar öllum þeim sem tóku þátt í fundinum fyrir góð störf sem munu nýtast við áframhaldandi vinnu.

Fundargestir voru sammála um að þau gildi sem best myndu einkenna framkomu fólks hvert við annað í samfélaginu væru virðing, heiðarleiki og samhyggð.

Meðal þess sem fundargestir lögðu áherslu á voru eftirtalin atriði:

  • Jafnari launakjör með hvetjandi kerfi og auknum vinnumarkaðsúrræðum.
  • Byrja nógu snemma að innræta grunngildi samfélagsins um virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum og umhyggju fyrir samfélaginu.
  • Gefa fólki svigrúm til sjálfsbjargar eftir að það hefur þurft að leita sér aðstoðar.
  • Jafna lífskjör í samfélaginu með því að allir hafi störf við hæfi, húsnæði og möguleika til að taka þátt í samfélaginu og mótun þess.
  • Koma á fót skiptivinnumarkaði og talsmanni bótaþega.
  • Hækka lægstu launin og skapa þannig jöfn tækifæri til atvinnu og menntunar fyrir alla.
  • Efla og standa vörð um velferðarþjónustu og auka félagslega ráðgjöf.
  • Fjölbreyttari námsleiðir og endurhæfing, efling í hjálparstarfi og á sviði atvinnu- og launamála.
  • Sveigjanleg velferðarþjónusta með skýr framfærsluviðmið veitt á einum stað.
  • Öllum þegnum sé tryggð viðurkennd lágmarksframfærsla með atvinnu, mannsæmandi launum og/eða samfélagslegum greiðslum.
  • Leggja sérstaka áherslu á barnafjölskyldur og virkni allra í samfélaginu.
  • Velferð skapar verðmæti, félagsleg og efnahagsleg.
  • Samfélagið þarfnast þátttöku allra og ber á móti að veita öllum úrræði við hæfi.
  • Raunhæf, viðurkennd framfærsluviðmið sem öll kerfi fylgja er grundvöllur aðstoðar og fjárhagsviðmiða.
  • Atvinna, menntun, endurmenntun og tækifæri er krafa og grundvöllur lífsgæða og félagslegrar virkni.
  • Efla foreldrafræðslu og stuðning við lítið menntað fólk.
  • Berjast gegn félagslegri einangrun fátækar með:
    – Góðum og gjaldfrjálsum almenningssamgöngum.
    – Gjaldfrjálsum menningarviðburðum fyrir börn og fullorðna.
    – Samkomustöðum þar sem fólk getur hist, óháð fjárhagsstöðu (e. meeting point for people).

Vel heppnaður fundur um fátækt og félagslega einangrun (Ljósm. Hreinn Magnússon)

Ljósmyndir: Hreinn Magnússon

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum