Hoppa yfir valmynd
20. maí 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Borgarafundur félagsmálaráðherra í Reykjavík fimmtudaginn 20. maí

Skuldastaða heimilanna, aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að létta greiðslubyrði og fyrirhugaðar leiðréttingar á höfuðstóli erlendra bílalána eru á meðal þess sem Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, kynnir íbúum höfuðborgarsvæðisins á borgarafundi á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, fimmtudaginn 20. maí klukkan 20.30–22.00. Heitt verður á könnunni – allir velkomnir.

Í upphafi fundar flytur ráðherra stutta kynningu þar sem lausnir á skuldavanda fólks eru settar fram á einfaldan og myndrænan hátt. Að því loknu mun hann svara spurningum og hlusta á hugmyndir frá fólki í þessum málaflokki og bregðast við þeim.

Fundurinn í Reykjavík er sá áttundi í röð rúmlega tíu borgarafunda sem félags- og tryggingamálaráðherra heldur víðs vegar um landið nú í vor. Á fundunum er farið yfir leiðir og raunveruleg dæmi sem sýna hvernig fólk í miklum skuldavanda hefur fengið gjaldfrest, lægri greiðslubyrði eða niðurfellingu skulda með því að nýta sér úrræði sem eru í boði.

Bætt löggjöf um skuldaaðlögun er skýrð út, svo og hlutverk nýs embættis umboðsmanns skuldara sem mun vinna með hag skuldara að leiðarljósi. Lögfræðingur og ráðgjafi frá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna eru með í för og verða til viðtals á fundinum.

Athygli er vakin á því að fundurinn í Reykjavík verður bæði rittúlkaður og táknmálstúlkaður.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum