Hoppa yfir valmynd
1. nóvember 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Norræn jafnréttisstefna til framtíðar

Norðurlandaráðsþing 2010 verður haldið í Reykjavík frá 2. nóvember til 4. nóvember nk.
Þingið hefst síðdegis á þriðjudag með leiðtogafundi norrænu forsætisráðherranna en efni fundarins í ár er: Grænn hagvöxtur - leiðin út úr kreppunni. Að leiðtogafundi loknum mun finnski forsætisráðherrann kynna formennskuáætlun Finna í Norrænu ráðherranefndinni árið 2011.

Efnt er til ýmissa viðburða í tengslum við þing Norðurlandaráðs og má þar nefna opinn fund í Þjóðmenningarhúsinu, þriðjudaginn 2. nóvember, þar sem fjallað verður um jafnréttisstefnu til framtíðar á Norðurlöndunum. Markmið fundarins er að kynna og ræða nýja fjögurra ára samstarfsáætlun um jafnréttismál og munu norrænir þátttakendur taka þátt í pallborðsumræðum um áætlunina.

Í pallborði verða: Maria Stenberg (S), fulltrúi í borgara- og neytendanefnd Norðurlandaráðs og þingmaður í sænska þinginu, Ingólfur V. Gíslason, dósent í félagsvísindum, Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræðum og Per Isdal frá Alternativ til Vold (ATV) -TBC.

Fundurinn í Þjóðmenningarhúsinu 2. nóvember stendur frá kl. 12:15 - 14:15.

Kynningarbæklingur um fundinn (á norsku).

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum