Hoppa yfir valmynd
19. september 2007 Heilbrigðisráðuneytið

Samninganefnd HTR semur um tæknifrjóvganir

Um áramótin tekur samninganefnd heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við samningum um tæknifrjóvganir. Frá árinu 2004 hefur Landspítalinn haft með höndum samninga um tæknifrjóvganir við fyrirtækið IVF Iceland, en nú hefur verið ákveðið að samninganefnd HTR taki við hlutverki Landspítalans og semji við fyrirtækið um þessa þjónustu. Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjárreiðna og upplýsinga Landspítala og forsvarsmenn IVF Iceland undirrituðu í dag viðbótarsamning vegna þjónustu fyrirtækisins, sem gildir þar til samninganefndin tekur við samningsgerðinni fyrir hönd heilbrigðismálaráðherra.

Frá undirritun viðbótarsamningsins í dag

Frá undirritun viðbótarsamningsins í dag



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum