Hoppa yfir valmynd
26. október 2007 Heilbrigðisráðuneytið

Gæðastyrkir - Rafrænar umsóknir

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið auglýsir styrki vegna gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustunni árið 2007 í samræmi við stefnumörkun heilbrigðisyfirvalda í gæðamálum til ársins 2010.

Afgreiðsla styrkja til gæðaverkefna fyrir árið 2007 eru nú rafræn að fullu. Rafræn afgreiðsla er liður í rafrænni stjórnsýslu ráðuneytisins og hluti af tilraunaverkefni með gagnvirkar umsóknir í samvinnu við Rekstarfélag stjórnarráðsbygginga og Hugvit. Umsóknavefur stjórnarráðsins hýsir verkefnið og þær umsóknir sem hljóta rafræna afgreiðslu innan stjórnarráðsins.

Umsækjendur um styrki til gæðaverkefna þurfa að sækja um aðgang að umsóknavef stjórnarráðsins á vefslóðinni http://umsoknir.stjr.is. Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjanda (ekki á kennitölu stofnunar) og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu. Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar.

Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið undir flipanum Umsóknir. Þar er umsóknareyðublað fyrir styrk til gæðaverkefna. Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út. Umsækjendur geta fylgst með afgreiðslu umsókna sinna í ráðuneytinu með því að skrá sig inn á umsóknavefinn.

Í styrkumsókn þarf markmið verkefnis að koma fram, framkvæmdaáætlun og hvernig nýta má niðurstöður til að bæta þjónustuna. Sótt skal um í nafni einstakra stofnana og/eða starfseininga.

Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2007.

Nánari upplýsingar um styrki til gæðaverkefna veitir Margrét Björnsdóttir, deildarstjóri í heilbrigðisráðuneytinu í síma 545 8700 eða í tölvupósti á [email protected].



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum