Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2007 Heilbrigðisráðuneytið

Tillaga Guðlaugs Þórs samþykkt í Osló

Norrænn sérfræðingahópur mun á næstu mánuðum vinna að tillögum um sameiginlegan lyfjamarkað á Norðurlöndum þar sem því verður við komið. Markmiðið er meðal annars að freista þess að auka viðskipti með lyf landa á milli. Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, bar fram þessa tillögu á fundi norrænu heilbrigðisráðherra sem haldinn var í Osló í gær í tengslum við Norðurlandaráðsþingið, en þingið var haldið þar. Sjónarmið ráðherra er að lítil markaðssvæði hafi ekki notið, í verði og framboði lyfja, frelsisins sem samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið ætti að tryggja.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum