Hoppa yfir valmynd
20. nóvember 2007 Heilbrigðisráðuneytið

Staða bókasafns- og upplýsingafræðings í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið auglýsir stöðu bókasafns- og upplýsingafræðings í skjala- og bókasafni ráðuneytisins lausa til umsóknar.

Verkefni:

  • Þátttaka í daglegum rekstri skjalasafnsins
  • Fræðsla og þjónusta við starfsmenn ráðuneytisins á sviði skjala- og upplýsingamála, þ.m.t. notkun Lotus Notes skjalastjórnarkerfisins Málaskrár
  • Önnur verkefni sem tengjast skjala og upplýsingamálum ráðuneytisins

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Áskilið er BA-próf í bókasafns- og upplýsingafræði að lágmarki
  • Þekking og reynsla af  skjalastjórn og rafrænum skjalastjórnarkerfum
  • Góð íslenskukunnátta ásamt kunnáttu í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli
  • Sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð
  • Hæfni í mannlegum samskiptum

 Launakjör eru samkvæmt samningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. 

Um er að ræða fullt starf og heyrir starfsmaðurinn undir skjala- og upplýsingastjóra ráðuneytisins. Æskilegt er að starfsmaður hefji störf í byrjun febrúar 2008.

Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Vegmúla 3, 150 Reykjavík eigi síðar en 17. desember nk.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Ólafsdóttir, skjala- og upplýsingastjóri ráðuneytisins, í síma 545 8700.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum