Hoppa yfir valmynd
27. febrúar 2008 Heilbrigðisráðuneytið

Breytingar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Svanhvít Jakobsdóttir, sviðsstjóri fjármála og rekstrar, tekur tímabundið við starfi forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðinsins. Svanhvít Jakobsdóttir tekur við starfinu tímabundið af Guðmundi Einarssyni, forstjóra Heilsugæslunnar, en heilbrigðisráðuneytið fór þess á leit við hann að yrði starfsmaður ráðuneytisins næstu mánuðina til þess meðal annars að taka þátt í undirbúningi vegna nýrrar stofnunar um sjúkratryggingar. Ráðgert er að sjúkratryggingastofnunin taki til starfa 1. september í haust.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum