Hoppa yfir valmynd
2. apríl 2008 Heilbrigðisráðuneytið

Greiðsluþátttaka vegna bæklunarlækninga

Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar ríkisins vegna þjónustu sjálfstætt starfandi bæklunarlækna sem eru án samninga.

Samningar samninganefndar ráðherra og sjálfstætt starfandi sérfræðinga í bæklunarlækningum um þjónustu utan stofnana runnu út 31. mars sl. og þar sem ekki hafa náðst nýir samningar er nú leitast við að tryggja stöðu sjúkratryggðra með sérstakri reglugerð. Samkvæmt lögum um almannatryggingar er greiðsluþátttaka ríkisins háð því að um þjónustuna hafi tekist samningar, en ráðherra getur þó vikið frá þeirri reglu og falið Tryggingastofnun ríkisins (TR) að endurgreiða sjúklingum hluta kostnaðar við þjónustu bæklunarlækna án samnings.

Reglugerðin gildir til og með 31. maí 2008 og samkvæmt henni er tilvísun frá öðrum lækni ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu TR á kostnaði vegna þjónustu bæklunarlækna.  Sjúkratryggður einstaklingur greiðir þjónustu viðkomandi sérfræðings að fullu og getur síðan sótt um endurgreiðslu hjá TR samkvæmt gjaldskrá sem fylgir reglugerðinni.

Enn er í gildi samningur Læknafélags Reykjavíkur (LR) og TR um greiðslu fyrir einnota efni og áhöld vegna aðgerða sem sjúkratryggðir einstaklingar gangast undir utan sjúkrahúsa. Þá eru einnig í gildi samningar við tilgreinda bæklunarlækna vegna krossbandaaðgerða á hnjám.  Sjúklingar þurfa því hvorki að leggja út fyrir efniskostnaði né greiða kostnað vegna krossbandaaðgerða umfram hlutdeild hins sjúkratryggða skv. reglugerð nr. 1265/2007.

Sérgreinalæknar sem hafa falið LR samningsgerð fyrir sína hönd hafa þegar samið við samninganefnd heilbrigðisráðherra og gildir sá samningur til 31. mars 2010.  Sérstök reglugerð vegna þjónustu þeirra er því ekki nauðsynleg.  Auk bæklunarlækna er enn ósamið við hjartalækna og barnageðlækna.  Samninganefnd heilbrigðisráðherra á í viðræðum við fulltrúa þeirra og er stefnt að niðurstöðu í þessum mánuði. 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum