Hoppa yfir valmynd
10. apríl 2008 Heilbrigðisráðuneytið

Aðgerðaáætlun skilar árangri

Aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra sem ráðherra beitti sér fyrir sl. sumar vegna geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni er þegar farin að skila árangri. Þegar aðgerðaáætlunin var kynnt síðsumars á liðnu ári var strax hafist handa um að hrinda henni í framkvæmd. Í ágúst var staðan sú að 165 börn og ungmenni biðu eftir þjónustu. Nú er meðalbiðtími 252 dagar og 107 bíða eftir þjónustu barna-og unglingageðdeildar (BUGL). Stefnt er að því að biðtími eftir þjónustu verði komin í viðunandi horf í árslok. Málið var rætt utan dagskrár á Alþingi í dag að frumkvæði Álheiðar Ingadóttur, VG.

Í máli heilbrigðisráðherra kom meðal annars fram:

“Eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarinnar og heilbrigðisráðherra sem hér talar að að beita sér sérstaklega í þágu barna og ungmenna sem glíma við geðraskanir. Þess vegna samþykkti Alþingi aðgerðaáætlun strax og ríkisstjórnin var mynduð sem tekur mið af þessarri pólitísku stefnumótun og mér er bæði ljúft og skyld að svara fyrispurnum háttvirts 11. þingmanns Reykjavíkur sem gerir málefni þessi að umtalsefni hér á Alþingi.

Í samræmi við aðgerðaáætlunina sem samþykkt hafði verið ákvað ég, í nánu samstarfi við fagfólk meðal annars á BUGL, að veita samtals 150 m.kr. til ákveðinna verkefna á árunum 2007 og 2008. Þegar var hafist handa við að ráða starfsfólk til að vinna markvisst að því að stytta biðlista eftir þjónustunni, bæði á BUGL og á Miðstöð heilsuverndar barna.

Háttvirtur 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður spyr um ráðstöfun þessa fjár:

Landspítali fékk 48 milljónir króna á árunum 2007 og 2008 til að ná niður biðlistum á BUGL og taka á uppsöfnuðum vanda. Í tengslum við aðgerðaáætlunina hefur verið unnið að breyttum áherslum í þjónustu BUGL og má sjá afraksturinn m.a í fækkun barna á biðlista eftir þjónustu, styttingu meðal­biðtíma og breyttu vinnulagi sem m.a. hefur falist í því að lengja vinnutíma starfsfólks og auka samstarf við aðrar stofnanir sem sinna geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga.

Vinna við styttingu biðlista gengur skv. áætlun. Á rúmu hálfu ári hefur tekist að fækka um rúmlega þriðjung (35%) á biðlista BUGL eða frá 165 börnum í 107, en á sama tíma hafa borist 100 nýjar tilvísanir á BUGL og við stefnu að bið eftir þjónustu verði komin í viðunandi horf í árslok.

Barna- og unglingageðdeild Landspítala fékk sérstaka fjárveitingu upp á 11 milljónir króna 2007 og 2008, til að efla ráðgjafarhlutverk deildarinnar við fyrsta og annars stigs þjónustuaðila með því m.a. að ráða fræðslustjóra og fjölga ferðum starfsmanna BUGL á heilbrigðisstofnanir úti á landi.

Lögð hefur verið áhersla á aukið samstarf BUGL við aðra þjónustuaðila sem koma að málefnum barna- og unglinga með geðraskanir, s.s. heilsugæslu og félagsþjónustu.

Í fyrsta lagi má nefna að gerðir hafa verið samningar við tvær heilsugæslustöðvar á höfuðborgar­væðinu um leiðbeiningu og ráðgjöf frá starfsmönnum BUGL.

Í öðru lagi hófst um áramót samstarf  BUGL og Heilbrigðisstofnunar Austurlands sem felur í sér þjálfun starfsmanna Heilbrigðisstofnunarinnar til að sinna geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga á Austurlandi.  

Í þriðja lagi eru haldnir reglulegir samstarfsfundir með starfsmönnum þjónustumið­stöðva höfuðborgarsvæðisins og er tilgangur þeirra funda að auka samstarf m.a. með því að kynna þjónustu og flytja úrræði/ þekkingu frá BUGL í nærumhverfi barna.

Í fjórða lagi hefur samstarf við greiningarteymi við Heilsugæslu og Skólaskrifstofu Akraness verið endurvakið. Jafnframt hafa önnur sambærileg teymi óskað eftir endurnýjun samstarfs bæði á Suðurnesjum og Suðurlandi.

Og í fimmta lagi má geta þess að starfsmenn BUGL hafa annast handleiðslu og fræðslu fyrir starfsfólk Miðstöðvar Heilsuverndar Barna (MHB) sl. tvö ár

Þá hefur verið ráðinn fræðslustjóri sem liður í eflingu þjónustu BUGL. Starf hans felst í skipulagningu á fræðslu fyrir foreldra, aðra þjónustuaðila og umsjón með stærri ráðstefnum. Hafinn er undirbúningur fræðsluverkefna til að auka stuðning við foreldra og þjónustuaðila í nærumhverfi.

Virðulegi forseti.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins fékk 30 milljónir króna árin 2007 og 2008 til eflingar Miðstöðvar heilsuverndar barna til þess að koma á jafnvægi og ná niður biðlistum á einu ári. Starfsfólk miðstöðvarinnar tók að sér aukna yfirvinnu ásamt því að barnageðlæknir var ráðinn í hlutastarf ásamt sálfræðing­um. Verulegur árangur hefur náðst hjá Miðstöð heilsuverndar barna í að ná niður biðlistum eftir þjónustu jafnframt sem biðtími barna eftir þjónustunni hefur styst. Í ágúst mánuði 2007 voru 110 börn á biðlista eftir þjónustu hjá Miðstöð heilsuverndar barna. Hefur þeim fækkað í um 80 börn eða um 28% sem bíða eftir þjónustu hjá miðstöðinni. Biðtími eftir þjónustunni var áður frá einu ári upp í eitt og hálft ár en er kominn niður í tvo til sex mánuði.

14 m.kr. voru veittar til tveggja heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni, Heilbrigðis­stofn­unar Suðurnesja og Heilbrigðisstofnunar Austurlands til að styrkja tilrauna­verkefni til að efla samvinnu þjónustuaðila, með því að fjármagna starf umsjónaraðila í eitt ár. Fjárveitingin er veitt í því skyni að auka samvinnu milli heilbrigðis­þjónustunnar, félagsþjónustunnar og annarra aðila sem veita einstaklingum með hegðunar- og geðraskanir þjónustu.

Þá hefur 35 m. kr. verið veittar til að auka aðgengi barna og unglinga að sjálfstætt starfandi sérfræðingum á sviði geðheilbrigðisþjónustu og hefur samninganefnd ráðherra nú þegar gert samning við sálfræðinga um þjónustu þeirra.

Virðulegur forseti.

Aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra sem kynnt var í ágúst á síðasta ári tók mið af brýnustu þörfum barna og unglinga sem þjást af geð- og hegðunarröskunum, en einnig voru settir fjármunir í að styrkja almenna geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Þá var 7,0 m.kr veitt til undir­búnings aðgerðaráætlunar á sviði forvarna um geðvernd barna og ungmenna til lengri tíma. Unnið er að þessari áætlun og niðurstaða þeirrar vinnu verður kynnt innan nokkra vikna og þá verða jafnframt kynntar tillögur ráðherra um fjárveitingar til lengri tíma til þessarar þjónustu.

 

Virðulegi forseti

Mikilvægt er að sem fyrst komist á jafnvægi í starfsemi Barna- og unglingageðdeildar Landspítala þannig að deildin geti sinnt þeirri þjónustu sem henni er ætlað og að biðtími eftir þjónustu verði í viðunandi horfi. Samkvæmt fyrrnefndri aðgerðaáætlun er verið að vinna úttekt á starfsemi og stjórnun BUGL og er gert ráð fyrir að niðurstöður hennar liggi fyrir eigi síðar en næsta haust og verði lagðar til grundvallar ákvarðana um framtíðarskipulag deildarinnar. Kostnaður vegna þessarar úttektar er áætlaður 5 milljónir króna.

Að lokum spyr háttvirtur 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður spyr hvort heilbrigðisráðuneytið hafi lagt fjármuni til eða gert samninga við Geðvernd barna og unglinga (GBU), sem stofnað hefur verið innan Heilsuverndarstöðvarinnar ehf.

Samkvæmt upplýsingum heilbrigðisráðuneytisins er hópur barnalækna, sálfræðinga og barnageðlækna sem nú er í stofurekstri og flest á samningi við samninganefnd heilbrigðisráðherra að flytja rekstur sinn í Heilsuverndarstöðuna ehf þar sem þau munu sameinast um rekstur og bjóða upp á þverfaglega þjónustu. Þessi hópur mun flytja starfsemi sína í Heilsuverndarstöðina í lok næstu viku.”



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum