Hoppa yfir valmynd
4. júní 2008 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðuneytið og Stiki semja

Heilbrigðisráðuneytið hefur samið við tölvu-og verkfræðifyrirtækið Stika ehf um þjónustu og rekstur RAI kerfi fyrir hjúkrunarheimili. Það voru þau Svana Björnsdóttir, forstjóri Stika, og Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, sem undirrituðu samninginn síðdegis. Hann felur í sér að Stiki tekur að sér að annast rekstur, hýsingu og þjónustu RAI (Nursing Home) skráningarkerfis og undirliggjandi gagnasafns fyrir verkkaupa. Markmið samningsins er að tryggja stöðugan rekstur RAI (Nursing Home) skráningakerfis og gagnasafns þannig að það nýtist til skráningar RAI-mælinga á inniliggjandi heimilisfólki á hjúkrunarheimilum (RAI Nursing Home).

Guðlaugur Þór og Svana

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, og Svana Björnsdóttir, forstjóri Stika eftir undirritunina

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum