Hoppa yfir valmynd
6. júní 2008 Heilbrigðisráðuneytið

Benedikt starfandi stjórnarformaður til haustsins

Benedikt Jóhannesson, formaður stjórnar sjúkratryggingastofnunar sem tekur til starfa í haust, verður starfandi stjórnarformaður stofnunarinnar uns forstjóri hefur verið skipaður. Það kemur í hlut starfandi stjórnarformanns að undirbúa starfsemi nýju stofnunarinnar og taka nauðsynlegar ákvarðanir  í samráði við  heilbrigðisráðherra og stjórn stofnunarinnar.

Lögð er áhersla á mikilvægi samráðs við Tryggingarstofnun ríkisins  við undirbúninginn, en hún annast nú afgreiðslu sjúkratrygginga í umboði heilbrigðisráðherra.

Umsóknarfrestur um stöðu forstjóra sjúkratryggingastofnunar var lengdur til 15. september 2008 þegar ljóst var að frumvarp til laga um sjúkratryggingar hlyti ekki endanlega umfjöllun fyrr en í september.

Ítrekað skal í þessu sambandi að umsóknarfrestur um starf forstjóra hinnar nýju stofnunar er til og með 15. september nk. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is og senda jafnframt greinagóðar upplýsingar um menntun og fyrri störf.

Skipað verður í stöðuna til fimm ára í senn. Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs. Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um stöðuna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum